Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1954, Page 36

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1954, Page 36
226 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR ist að það var eins og hann næði aldrei til hennar, eins og hún væri alltaf hálfgerð huldukona, en náttúrlega hafði hann aldrei talað um það við hana. Einu sinni hafði hann gert tilraun til þess eftir að vera búinn að hugsa um þelta lengi, en þá varð hann fyrir þeirri furðulegu reynslu, að allt sem hann fékk fram af vörunum varð svo óstjórnlega skoplegt og heimskulegt, þótt það liti allt öðruvísi út á meðan það hélt kvrru fyrir í heilabúinu á honum sjálfum. Hann hafði aldrei verið neinn orðsins maður. Hinir rosknu sem höfðu snúið að þeim bökum voru staðnir upp og farnir að þjarka á útlendu tungumáli, bersýnilega um það, hverjum ætti að hlotnast sá heiður að borga brúsann. Einn þeirra, lítill ístruhnubbur, stingur tveiin fingrum niðrí vestisvasann, vísifingri og löngutöng með hreiðum og sléttum gullhring. Þar með var málið útrætt. Hann fylgdist með þeim áhugalaust, horfði á hvernig þeir reigðu sig í bakinu um leið og þeir fóru og skildu eftir blátt ský af vindlareyk. Konan hélt áfram að reykja og tók ekki eftir neinu. Hún horfði fram- hjá honum og eins og í gegnum hann, og augu þeirra mættust ekki, þótt hann liti á hana. Bræluna af bikinu lagði nú enn fram með húsaröðinni þeirra megin og sló undir tjaldið. Þá leit hún við rétt sem snöggvast og horfði á verka- mennina strila í malbikinu. Þeir voru bláklæddir og ógreinilegir, og það var þægilegt að horfa á þá eins og það getur stundum verið þægilegt að horfa á vél í gangi án þess að þurfa að þekkja liana til nokkurrar hlítar og án þess að hún komi manni við. „Því er hann ekki hér, maðurinn sem ég elska?“ Hann var hér fyrir tíu árum, og hún hafði búizt við að finna hann hér aftur — ekki hann sjálfan, heldur þær löngu liðnu vikur sem höfðu orð- ið hér eftir og sjálfa sig eins og hún var þá. Hún hafði búizt við að dvöl- in hér mundi hjálpa henni til að minnast, rifja upp fyrir henni allt það gamla, gefa henni aftur þær stundir sem voru löngu liðnar og fylla dag- ana ljúfsárum draumi, en ekkert slíkt hafði gerzt. Hún hafði komið á alla gömlu staðina, þeir voru hér ennþá, en þótt hún þekkti þá aftur eða öllu heldur kannaðist við þá, voru þeir henni nýir og framandi og óskyldir þeim minningum sem við þá voru tengdar. Fyrst hélt hún að það væri af því, að hún var í fylgd með manninum, en þótt hún létist þurfa á hárgreiðslustofu og færi þangað ein, komu þeir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.