Tímarit Máls og menningar - 01.12.1954, Síða 59
SÁLFRÆÐI NÚTÍMANS
249
ekki heldur vanizt þeim hraða, sem einkennir menningu okkar. Þeir eiga
því bágt með að skilja, að þeim beri að leysa verkefnin á sem stytztum
tíma.
Margar þeirra rannsókna, sem gerðar hafa verið á greindarmismun
kynþátta, hafa lítið gildi, vegna þess að þeir, sem framkvæmdu rann-
sóknirnar, hafa ekki gætt þess nægilega vel, að hópar þeir, sem voru
prófaðir, væru jafnir að öllu leyti öðru en því, að þeir væru af ólíkum
kynþáttum.
Nýlega hafa þó verið gerðar nokkrar rannsóknir, sem virðast uppfylla
öll þau skilyrði, sem ástæða virðist vera til að gera til slíkra rannsókna.
Mun ég skýra frá nokkrum þeirra.
Rétt er að geta þess, að flestar þær rannsóknir, sem gerðar hafa verið
á sálfræðilegum mismun kynþátta til þessa, hafa verið rannsóknir á
greindarþroska. Tiltölulega fáar rannsóknir hafa verið gerðar á öðrum
þáttum persónuleikans, svo sem tilfinningalífi og lífsviðhorfum.
Astæðurnar til þessa eru m. a. þær, að greind er sá eiginleiki, sem við
höfum nú tiltölulega nákvæm próf Lil að mæla. Til skamms tíma hafa
próf lil að mæla aðra þætti persónuleikans verið ófullkomnari. Allra síð-
ustu árin hafa þó orðið miklar framfarir á þessu sviði.
Mikilvæg ástæða lil þess, að áherzla hefur verið lögð á greindarmæl-
ingar í þessu sambandi, er lika sú, að greind er sálfræðilegur eiginleiki,
sem við vitum að erfðir ráða tiltölulega miklu um. Ef við viljum svara
spurningunni, hvort sálfræðilegur mismunur kynþátta sé erfður eða
áunninn, verður fyrsl og fremst að athuga, hvort kynþáttamismunur sé
á þeim eiginleikum, sem erfðir ráða miklu um.
1'ilgangslítið er að leita eftir kynþáttamismun með tilliti til eiginleika,
sem mótast mest fyrir áhrif umhverfisins, ef við viljum komast að niður-
stöðu um, hver sé eðlislægur mismunur kynþátta.
Sálfrœdilegar rannsóknir
Ameríski sálfræðingurinn, Otto Klinberg, hefur framkvæmt umfangs-
mikla rannsókn til þess að komast eftir því, hvort börn svertingja væru
verr eða betur gefin en börn hvítra manna. Þetta er ein hin vandaðasta
rannsókn, sem hefur verið framkvæmd á greindarmismun kynþátta, og
skal ég því lýsa henni nánar.