Tímarit Máls og menningar - 01.12.1954, Page 71
GJAFIR ELSKHUGANNA
261
Hann tekur upp eina gosdrykkjaflösku og réttir henni. Hann nær í
bolla í kistunni og réttir henni einnig.
Nei, ég vil ekki bollann. Eg ætla að drekka úr flöskunni. Hún sýpur
einn sopa af appelsínuvatninu, en ætlar varla að geta haldið honum
niðri. Henni varð svo skyndilega flökurt af því að sjá bollann, sem hann
rétti henni. Bollinn hafði auðsjáanlega verið mikið notaður, en ekki ver-
ið þveginn í marga mánuði og var þess vegna farinn að barka að innan.
£r eitthvað að þér, Jóna mín? spyr hann.
Mér er svo flökurt, Ásbjörn, ég verð að fara. Hún leggur flöskuna frá
sér, stendur upp, tekur kápuna sína og er óðara horfin út úr dyrunum.
Ekkert virðisl geta stöðvað hana. Ásbjörn horfir á eftir henni vonsvik-
inn. Hann getur ekkert sagt.
Næstu daga á eftir forðast hún hann og hættir meira að segja að
lieilsa honum á förnum vegi. Hann fer að hugsa um það, hverju fram-
koma hennar sæti. Hann vissi ekki til, að hann hefði gert neitt á hluta
hennar. Hann verður óánægður með lífið og það er ekki laust við, að
hann verði önuglyndur og jafnvel fúll við fólk, sem ekkerl hefur gert á
hluta lians. Hann hæltir meira að segja að hugleiða íslenzka sólarlagið,
sem hann sjálfur hafði ujjpgötvað.
Einn morgun, nokkrum vikum síðar, uppgötvar hann hvers vegna
Jóna er svona afundin við hann. Hann er viss um, að henni hefur orðið
flökurt af lyktinni af skerpukjötinu, þessi lykt, þó hann fyndi hana ekki,
hefur flæmt hana í burtu frá mér, hugsar hann upp frá þessu. Og hann
verður svo hugfanginn af þessari uppgötvun sinni, að hann fer ósjálfrátt
að hugsa um hinn sérkennilega gang sólarinnar og ásetur sér að eyða
lyktinni úr herberginu.
Einn dag eftir hádegi gengur hann fyrir verkstjórann og biður hann
um frí úr vinnunni. Verkstjórinn vísar honum til Bentons hershöfðingja,
sem réð öllu þarna við herskálabyggingarnar. Ásbjörn gengur fyrir
Benton liershöfðingja. Benton situr við skrifborð sitt í einum skálanum.
Hann er miðaldra, dökkur yfirlitum, fremur hár. Andlitsdrættir hans eru
skarpir og kaldir eins og á flestum hershöfðingjum. Benton er með sann-
kallað járnandlit. Hann er margra barna faðir frá London. Á skrifborð-
inu eru myndir af fjölskyldu hans. Benton skilur dálítið í íslenzku. Hann
leyfir Ásbirni að fara frá vinnunni í þetta sinn, en segir honum að slíkt
fáist ekki aftur.