Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1954, Page 73

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1954, Page 73
GJAFIK ELSKHUGANNA 263 eða snúa á sig. Hann ákveður því að fara með pakkann til Jónu og gefa henni þessa rausnarlegu gjöf sjálfur. Hann lætur umbúðirnar utan um gjafirnar og fer ineð pakkann yfir til Jónu. Honum er sagt að Jóna sé niðri í kjallara að leggja í bleyti þvott. Hann fer niður með pakkann. Hún stendur við stamp og hrærir í sápu- vatni. Þegar bún sér hann með þennan stærðar pakka spvr hún liann reiðilega án þess að heilsa: Hvað ertu með? Viltu finna mig? Ég er með pakka til þín. Ég vil ekki sjá neinar gjafir frá þér. Þessir karlmenn, þeir eru sannar- lega aumir. Að vera með ykkur, að þekkja ykkur, að umgangast ykkur, það er að fara frá einni plágunni til annarrar. Ef þið eruð ekki latir, þá eruð þið þjófóttir, og ef þið eruð ekki þjófóttir, þá eruð þið sóðar. Farðu út með þennan pakka, ég vil ekki sjá hann. Það kom brezkur hermaður með hann og bað mig að afhenda þér hann. Láttu hann þarna á borðið og flýttu þér svo út! Asbjörn lætur pakkann á þvottaborðið. Honum líður illa og hann veit ekki, hvað hann á að segja. Ertu trúlofuð? spyr hann án þess að reyna að særa hana með því að gefa í skyn, að hún sé í ástandinu. Nei, ég er ekki trúlofuð. Og ef ég á að segja þér eins og er, þá ætla ég í klaustur í Englandi. Ég er orðin kaþólsk og er hætt að skipta mér af karl- mönnum. Það er eitthvað mikiÖ leiðinlegt við karhnenn. Og farðu frá mér eða ég tek slönguna og sprauta á þig vatni! Hún þrífur vatnsslönguna og sprautar á Áshjörn, en liann forðar sér út. Sumarið er brátt á enda, og hann hefur veitt því athygli, að sólin er farin að setjast í vestri. Hann hefur sagt upp herberginu. Hann hefur ekki lengur ást á þessum blettum eða þessuin litlu húsum hér í kring. Þau eru orðin honum ókunn og fjarlæg. Meira að segja á þjóðveginum er annarlegur blær. Jóna er orðin kaþólsk, og hann er sannfærður um, að það sé rétt. Hann hefur líka frétt, að hún sjáist oft í kaþólsku kirkjunni og sé staðráðin í því að ganga í klaustur. Enda hefur hún ekki sézt ineð karlmönnum. Og nú stendur hann hér seinasta morguninn á kolli sínum og horfir á gluggann hennar Jónu í kveðjuskyni og sér gluggatjöldin
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.