Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1954, Page 100

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1954, Page 100
290 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR hennar upp frá þeirri stundu og allt til síðustu áratuga, og nú hefur saga síð- ustu ára rifjað upp þá sögu á nokkuð harkalegan hátt.“ Við þetta vildi ég bæta, að íslendingum væri Sturlunga- öldin hugstæðari flestum öðrum skeið- um sögunnar, af því að snjallasta sam- tíma sagnfræðirit íslenzkt fjallar um þetta tímabil. Á efri árum ræðst sagnfræðingurinn Sturla Þórðarson (d. 1284) í það stór- virki að setja saman og semja íslands- sögu. Hann hefur verkið á ýtarlegri frá- sögn af landnámsmönnum, Sturlubók Landnámu, tengir hana við Kristnisögu, sem hann hefur sennilega samið sjálfur, en hún fjallar um kristnitökuna og fyrstu biskupana. Þá kemur mikið safn- rit um höfðingja 12. og 13. aldar, og þekkjum við það undir nafninu Sturl- unga. í Sturlungu eru ýmsar sögur eftir marga höfunda, en Sturla Þórðarson á þar viðamestu frásögnina, íslendinga- sögu, um atburði Sturlungualdar, en í þeim atburðum öllum á hann meiri og minni þátt. Sturlunga er erfið bók aflestrar. Hún fjallar um stórkostlega atburði, og er talið, að þar komi um 2500 manns við sögu. Saga 13. aldar verður aldrei sögð betur en þar er gert, af því að þar fjalla samtíma menn um málin, að því er virð- ist á mjög raunsannan hátt. Ritið skipar þess vegna virðulegan sess meðal sagn- fræðiverka allra alda og allra þjóða. Það grípur lesendur yfirleitt því fastari tökum sem þeir lesa það betur, en hlut- skipti flestra dvrkenda Sturlungu hefur hingað til verið á þá leið, að þeir hafa drukknað í mannfræði, ekki séð skóginn fyrir trjánum. í íslandssögum síðari tíma hefur 13. öldin oftast skipað óeðli- lega mikið rúm, af því að höfundar hafa fallið í þá freistni að endursegja Sturl- ungu án þess að vega og meta mikilvægi einstakra atburða. 1 fyrra gaf ég út bók, íslenzka þjóð- veldið, og reyndi þar að hafa nokkuð annan hátt á en áður hafði tíðkazt; gera eins konar uppreist gegn ofurvaldi hins mikla sagnfræðirits og skenkja atburð- um Sturlungaaldar eins knappt rúm og frekast var unnt. Bókin er 319 síður, en af því lesmáli er f jallað um Sturlungaöld á 20 síðum. Verið getur, að ég hafi syndgað upp á náð Sturlungu með því að gera þessu stórfellda tímabili of lítil skil, en mér hefur gengið illa að komast að kjarna málsins, greina þar fróðleik frá sagnfræðilega mikilvægum atburð- um. Væri ég núna að semja rit um þetta tímabil, yrði kaflinn um Sturlungaöld allmiklu ýtarlegri. Ástæðan er hið nýja rit Gunnars Benediktssonar um örlaga- þætti Sturlungaaldar. Þar hefur hann fundið rauðan þráð, þar sem aðrir sáu einungis gráa, margslungna uppistöðu. Allt það, sem ég hef lesið og lært um sagnfræði þessa tímabils, hefur verið þrungið af fróðleik án verulegs, póli- tísks innsæis. Atburðimir standa flestir í skýru Ijósi snjallra frásagna samtíma- manna, en þó er eins og höfundarnir kveinki sér stundum við að segja af- dráttarlaust alla söguna eins og hún gekk til. Ilöfundar Sturlungasafnsins voru bundnir af alls konar viðhorfum síns tíma, svo að þeir freistuðust til að sleppa úr frásögn sinni atriðum, sem komu sér persónulega illa fyrir þá síð- ar. Þetta á ekki sízt við um aðalhöfund- inn, Sturlu Þórðarson. Mikilvægasti atburður Sturlunguald- ar eru eiðatökurnar á alþingi 1262. Frá þessum atburði og aðdraganda hans um vorið er sagt á þann hátt, að sagnfræð-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.