Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1954, Side 105

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1954, Side 105
L'MSAGNIR UM BÆKUR 295 þeim á bekk góðra listaverka. Það er villandi að skilgreina einhver verka hans sem sögur, frásagnir heita það. En sá er einn sterkasti þáttur listar hans, að hversdagslegustu frásagnir hans gæðast dramatík, að baki hinna hversdagsleg- ustu atburða skín í örlagaþætti heilla þjóða og alls mannkyns. Það virðist ekki stór atburður, þótt rauður og þrút- inn Breti, sem verið hafði herforingi í Indlandi, reki íslenzkan strák úr vinnu, fyrst sá strákur er ekki í neinum beygl- um staddur, þótt svo fari, og andlega séð er honum heldur ekki nein eftirsjá að samfélaginu. En skemmtileg frásögn af dreng, sem stjanar við brezka lax- veiðimenn uppi í Borgarfirði, er í öllu sínu yfirlætisleysi allt í einu orðin hlið- stæða við frelsisbaráttu annarrar stærstu þjóðar heims undan nýlendukúgun brezka heimsveldisins, — Indverjar og Jónas Árnason eru báðir jafnfegnir lausninni. — Krakkar leika sér og rífast og fljúgast á í fyrsta snjó vetrarins, eins og gerist og gengur í hverju þorpi og hverjum sveitabæ á íslandi og alstaðar um víða veröldu, þar sem bæði snjó og börnum er til að dreifa. En í frásögn Jónasar þróast þessi leikur og rifrildi yf- ir í eindrægni og söng, og það kemur til af því, að til þess að reisa snjókerlingu þarf að gera snjóinn að sameign og síð- an þarf að hafa samvinnu um bygging- una. Fjaran, þar sem Pétur Salómonsson hefur einkarétt á að tína verðmætin úr sorphaugum Reykjavfkur, hún verður ekki aðeins örlagafjara þessa sérrétt- indamanns, heldur þrýstir blær frásagn- arinnar því inn á vitund okkar, að þessi fjara er aðeins tákn þeirrar fjöru, þar sem upp hrúgast sorphaugar mannlífs- ins og verður örlagafjara mikils hluta mannkynsins. Og lítil sjóferð á tveggja manna fari rétt undan iandi á Skjálf- andaflóa er allt í einu orðin hin mikla sjóferð kynslóðanna um hið ólgandi lífs- haf, og þeirri för lyktar gæfusamlega, af því að víðsýni og lífsreynsla öldungsins og hin haukfrána sýn æskumannsins haldast í hendur, annar er ekki yfir hinn settur, en hver leggur fram það, sem hann hefur hinum nieira til brunns að bera. Safi frásagnarinnar er sóttur í samlíf við fólkið, sem byggir þetta land, sem nefnt er fsland. Heiti bókarinnar er rétt- nefni. Jónas Árnason er einn í hópi þeirra ungra rithöfunda á íslandi, sem skynja það með innstu tilfinningum hjarta síns, að maðurinn er það æðsta og fegursta, sem til er á jörðunni, og þó ekki aðeins maðurinn, heldur fyrst og fremst fólkið, samlíf mannanna. Þess vegna verður svo elskulega bjart yfir frásögnum hans. Hann skrifar pistil um Grímsey. Það er vafamál, að öðru sinni hafi verið gefin greinilegri lýsing á Grímsey, landslagi, atvinnuháttum og sveitasiðum. Þó fer það svo, er við les- um þennan pistil, að það er ekki fræðsl- an, sem við fyrst og fremst njótum, heldur hitt, að komast í samband við fólkið, sem hann talar við, fræðir hann um eyjuna og sýnir honum hana. Það gerir fábreyttustu og hversdagslegustu hluti athygli verða. Hve lítils vert er það ekki, þótt úti í Grímsey hafi eitt vorið fyrirfundizt eitt tvíblóma kríuegg, en það eitt, að lítil stúlka finnur þetta egg, gerir það að hugðnæmum viðburði. Jónasi er veitt sú náðargáfa, og senni- lega í óvenjulega ríkum mæli, að hafa ánægju af að umgangast fólk, unga og gamla, Börn — og annað fólk, hlusta á það og tala við það. Og hann vanrækir ekki þessa náðargáfu sína. Hann hlust-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.