Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1954, Page 106

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1954, Page 106
296 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR ar ekki aðeins á fólk til að njóta þess að heyra það tala. heldnr einnig til að þekkja það og læra að tala við það. Hann leitar þangað sem fólkið er að finna, þar eru hans fiskimið. Hann fer út á götuna, þar sem börnin leika sér, hann gefur sig að skurðgreftri að vetr- arlagi, hann er við fiskiveiðar á mótor- bátum í Bugtinni, og á togurum fer hann alla leið til Grænlandsstranda. Þegar hann segir svo frá þessum ferð- um sínum og störfum, þá stafar gleði og lífsnautn af hverri setningu, af því að hann er með hamingjusömu fólki, sem stendur við frumstæðustu og hversdags- legustu skyldustörfin í þjónustu lífsins. Þessu fólki helgar hann svo frásagnar- list sína, finnur þess eigin tungutak óma í sál sinni og gefur því það aftur í frá- sögnum sínum, enn hreinna og list- rænna. Við lesum vart nokkra þá grein eftir Jónas í blaði eða tímariti, sem við ekki óskuðum að eiga í safni annarra rit- gerða hans í bók í bókaskápnum okkar. Við erum þakklát Máli og menningu fyr- ir þessa bók og vildum mega eiga von á annarri, áður en langir tímar líða. Og þó teljum við okkur það enn meira virði að sjá sem oftast nvja ritgerð eftir hann í blaði eða tímariti. Þótt greinar hans séu undralíkar hver annarri að frásagn- arblæ og öðrum veigamiklum atriðum, þá er sízt að óttast skort á fjölbreytni og nýmælum með Iiverri grein. Hann er í nánari tengslum við mannlífið, örlög þess og baráttu, en svo, að hætta sé á stöðnun og endurtekningum. Því hvað býr yfir meiri f jölbreytni en hið tilbreyt- ingalausa líf hversdagsins? Og hvað býður lífið sérkennilegra og frásagnar- verðara en hinn hversdagslega mann? Gunnar Benediktsson. íslenzk nútímaljóS á ítölsku Hingað hefur borizt kverkorn sem lætur ekki mikið yfir sér að ytra útliti. en sætir þó nokkrum tíðindum: Poeti Islandesi modemi. Versioni di Giacomo Prampolini. Milano 1954. Þýðandinn er víðkunnur ítalskur rithöfundur og bók- menntafræðingur, sem m. a. liefur ritað langt mál um íslenzkar hókmenntir í stórri alþjóðlegri bókmenntasögu sem nýlega er komin út og auk þess þýtt talsvert úr íslenzku. Má lesa um hann í Árbók Landsbókasafnsins 1950—51, bls. 206—8. Kvæðin í þessari bók erti öll þýdd beint úr íslenzku og flestöll tekin úr safni þeirra Kristins E. Andréssonar og Snorra Hjartarsonar, Islenzk nútíma- lýrikk. Þarna em þýdd 30 kvæði eftir 23 skáld, öll ort á þessari öld. Skáldin eru þessi: Jóhann Sigurjónsson, Siguið- ur frá Arnarholti, Hulda, Jóh. G. Sig- urðsson, Orn Amarson, Jónas Guðlaugs- son, Stefán frá Hvítadal, Jakob Smári, Þórhergur Þórðarson, Davíð Stefánsson, Sigurður Grímsson, Jóhann Jónsson. Jór Magnússon, Jón Thoroddsen, Jó- hannes úr Kötlum (2), Jón Helgason, Tómas Guðmundsson (2), Halldór Kilj- an Laxness, Guðmundur Böðvarsson (2),Snorri Hjartarson (2),Steinn Stein- arr (4), Jón úr Vör, Jón Óskar. (Tölurn- ar í svigum merkja kvæðafjölda þeirra skálda sem fleiri kvæði eiga en eitt.) Þýðingarnar virðast mjög nákvæmar, en um skáldskapargildi þeirra í augum í- talskra lesenda get ég ekki dæmt. ítalsk- ur ktinningi minn hefur þó í mín eyru lokið á kvæðin lofsorði og kallað þatt góðan skáldskap. Slíkir menn sem dr. Prampolini eru íslendingum þarfari en rnargan gmnar, og megtint við vera hon- ttm þakklátir fyrir þetta verk engu síður en hin fyrri. /. B.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.