Tímarit Máls og menningar - 01.12.1960, Blaðsíða 33
HELGI J. HALLDÓRSSON
Ólafur Jólianu Sigurðsson
Erindi jlutt á bókmenntakynningu í Háskólanum 24. apríl 1960.
OLAFUR JÓHANN SlGURÐSSON er
fæddur að Hlíð í Garðahreppi
1918, sonur Sigurðar Jónssonar og
Ingibjargar Þóru Jónsdóttur. Frá
Hlíð fluttist hann með foreldrum sín-
um vorið 1924 að Litla-Hálsi í Grafn-
ingi og vorið 1928 að Torfastöðum í
sömu sveit. En þegar hann var 15 ára
eða 1933 fluttist hann til Reykjavík-
ur staðráðinn í því að gerast skáld.
Síðan hefur Ólafur Jóhann lengst af
átt heima í Reykjavík og unnið þar
ýmiss konar vinnu jafnhliða því sem
hann hefur sinnt köllun sinni —
skáldskapnum. Hann hefur notið
skólamenntunar af skornum skammti,
en aflað sér staðgóðrar sjálfsmennt-
unar, m. a. siglt þrívegis aí landi
brott. Hann dvaldist í Kaupmanna-
höfn veturinn 1936—’37, í New York
1943—’44 og sótti þá m. a. fyrirlestra
um bókmenntir. Og sumarið 1949
dvaldist hann um tíma í Kaupmanna-
höfn og Stokkhólmi.
Ólafur Jóhann hóf rithöfundarferil
sinn með því að senda frá sér smá
safn af barnasögum. Við Álftavatn,
1934. Árið eftir kom út eftir hann
önnur barnabók, Um sumarkvöld.
Þessar barnasögur urðu fljótt vinsæl-
ar og Við Álftavatn hefur komið út í
fjórum útgáfum. En Ólafur Jóhann
vildi ekki vera barn lengur. Hann
vildi sem fyrst verða fullorðinn og
skrifa fyrir fullorðna. Þegar ég lít yf-
ir verk Ólafs Jóhanns í heild, harma
ég raunar, að hann skyldi ekki við
útgáfu þeirra hafa meira í huga, að
þau væru lesefni handa börnum og
unglingum. Það er mjög þarft verk
og jafnframt þakklátt verk að semja
og gefa út góðar barna- og unglinga-
bókmenntir. Og það vill svo til, að
margt hið bezta bæði í hinum lengri
skáldsögum Ólafs Jóhanns svo og
margar smásögurnar eru um börn og
unglinga og rituð við þeirra hæfi.
Þættirnir: Stjörnurnar í Konstantínó-
pel, Hengilásinn, Reistir pýramídar,
Trufl og fleira, sem ég tel með því
bezta sem ritað hefur verið þeirrar
tegundar á íslenzku, eru í rauninni
barnasögur, þó að fullorðnir geti
einnig lesið þá sér til ánægju og upp-
367