Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1960, Síða 76

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1960, Síða 76
TÍMARIT MÁLS OG M ENNINGAR fyrir jiaS þótt í bókina vanti ýmis nýnefni, eins og Heiðbrá, Rúnar og fleiri. Ytri frágangur bókarinnar er vandaður. Nokkuð skortir þó á fullt samræmi í staf- rófsröð, einkum í orðum sem byrja á Þor- eða Þór-, en ekki skiptir það verulegu máli. Höf. befur bent á að við nafnið Þróttólfur (170. bls.) hefur fallið brott helmingur skýringarinnar; hún á að vera „öflugur úlfur“. Viðliðurinn -björt hefur og fallið brott í upptalningu viðliða í kvennanöfn- um. Tilgangurinn með bók þessari er „að bet- ur verði vandað til skímamafna eftir út- komu hennar en áður, að útlendum nöfn- um og nafnleysum fari fækkandi og þjóð- legum íslenzkum nöfnum fjölgandi að sama skapi,“ eins og höf. segir í formála. Ifonum er og ljóst að í bókinni em einnig „heiti, sem falla lítt að smekk aldar vorrar og verða því naumast endurvakin". Meðal slíkra nafna eru heiti eins og Roðrekur, Trefill, Tófa og Þorljót. Hætt er við að ýmsum þeim er sjálfir heita eða hafa látið skíra óíslenzkulegum nöfnum, finnist fátt um bókina í heild eða einstaka dóma höfundar, og skiljanlegt er að mönnum sé sárt um nöfn sín. Flestir munu þó heldur kjósa að bera íslenzkulegt heiti, en í því efni hefur venjan ruglað smekk býsna margra. Og það er trú mín að þessi bók Hermanns Pálssonar eigi eftir að forða mörgum íslendingum frá þeirri ógæfu að vera skírðir vondum nöfnum. Árni BöSvarsson. Ljósir dagar Sögur eftir Ólaf Jóh. Sigurðsson. Menningarsjóður 1959. AÐ er fyrir löngu orðinn almannaróm- ur, að Ólafur Jóhann Sigurðsson sé eitt af listfengustu skáldum okkar, þeirra sem nú halda á penna. Hann ritar litauðugra, bjartara og hreinna mál, en aðrir jafnaldr- ar hans. Nostursemi hans við heimanbúnað rita sinna er einstök. f smásögum Ólafs gætir allra beztu eig- inda hans: Frásagnargleðinnar, listfengi málsins, hnitmiðunar og sparsemi á dýr orð, þrátt fyrir ríkidæmið, og síðast en ekki sízt innilegrar innlifunar hans og mannlegs skilnings á lífi og högum sögu- fólksins. Smásögur Ólafs eru orðnar mjög margar. Nú, þegar ég lít yfir sagnabækur hans í huganum, finn ég að sögumar hafa að sjálfsögðu orðið mér misjafnlega hug- stæðar, en undrast það jafnframt, að ég skuli ekki minnast neinnar í þeim hóp, sem ég tel misheppnaða. Eina skáldsögu Ólafs, Litbrigði jarðar- innar, set ég við hlið beztu smásagna hans, enda er hún styzt bóka hans; eitthvert feg- ursta skáldverk, sem komið hefur út á ís- lenzku síðasta aldarfjórðunginn. Frásögn um æskuástir, vaknandi líf og vonbrigði. Kannski fellur hinn ljóðræni stíll Ólafs og náttúruskyn hvergi betur að efni en þar. Þessa löngu sögu og fimm smásögur hef- ur Sigurður Guðmundsson valið í sýnisbók ritverka Ólafs Jóhanns, sem Menningar- sjóður hefur gefið út. Ennfremur birtir hann þar tvo skáldsögukafla úr Vorkaldri jörð og Gangvirkinu. Sigurður ritar og fróðlegan, hlýlegan og fallegan formála fyrir útgáfu sinni. Ekki hefur hann kastað höndum til þessarar bókargerðar, enda vandvirkur maður með afbrigðum og þaul- kunnugur ritferli Ólafs. En sitt sýnist hverjum eins og gengur. Ég hefði ekki birt þarna sögukaflana og Litbrigðin, heldur látið nægja að kynna Ólaf sem smásagnahöfund. Þá hefði bókin orðið meiri heild og sjálfstæðari eign sem bók. Mér virðist það ekkert aðalatriði að slík sýnisbók sé fyrirferðarmikil, heldur 410
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.