Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1982, Blaðsíða 54

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1982, Blaðsíða 54
Tímarit Máls og menningar „Halldór minn,“ (hún hafði aldrei nefnt mig með fullu nafni fyr) „faðir þinn andaðist í morgun. Mig lángar að þú komir heim. Mamma þín.“ Þessa björtu nótt um sólstöður reið ég ásamt nágranna okkar Sveini í Túngu heim til mín í dalinn. (226) En fáum dögum áður, þegar feðgarnir skildu í kirkjufordyri að lokinni guðsþjónustu heima í sveitinni, hafði sonurinn beðið föður sinn að hlaupa undir bagga með prentkostnað skáldsögu sinnar, og fengið svarið: „Það verður litið til þín Dóri minn.“ (222) Ekki að undra þó að þessi síðustu orð föður hans við hann hafi orðið honum ógleymanleg. Að föður sínum látnum hætti Halldór fyrir fullt og allt við nám í Menntaskólanum og fór til útlanda; fyrsti áfanginn varð Kaupmannahöfn. En fyrst hafði hann látið opinberlega til sín taka heima fyrir, með upplestri úr handritinu að skáldsögu sinni í samkomuhúsinu Bárubúð að kvöldi 12. maí 1919. „Með því að kalla á þjóðina og fá af henni bergmál, vonaðist ég til að ekki aðeins mundu mér upplúkast vitranir um hver ég væri, heldur hvaðan ég væri og hvert ég ætlaði.“ (206) En undirtektir voru daufar, að sögn höfundarins: „Einginn við- staddur þakkaði höfundi fyrir tilraun hans. Ekkert dagblað merkti hjá sér daginn, hvort eða hvernig skemtunin hefði farið fram. Af þögninni mætti ráða að þessi skemtun hafi farist fyrir.“ (215) En við vitum nú að bergmál þjóðarinnar við rödd Halldórs Laxness átti eftir að verða svo sterk og fjölbreytt að furðu gegnir. Seinna sama ár birtist skáldsagan Barn náttúrunnar eftir Halldór frá Laxnesi í Reykjavík að honum fjarstöddum. Nú var rithöfund- arferill hans hafinn í alvöru. Enda var eitt fyrsta verk hans þegar hann var kominn í vist hjá Scheuermannshjónunum í Höfn að láta prenta handa sér nafnspjöld og festa eitt á dyrnar, „öllum til viðvörunar sem leið áttu inn gaungin á 3ðju hæð í Stóru Kóngs- insgötu 96“: „Halldór frá Laxnesi poéta“. Héðan af fáum við í þessari æskusögu mynd af ungum manni sem einbeitir sér við lífsverk sitt. Eftir fáeina mánuði í Höfn hefur hann — seytján ára gamall — fengið birtar þrjár smásögur eftir sig í sunnudagsblaði Berlingske Tidende, samdar á dönsku. 172
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.