Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1982, Page 58

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1982, Page 58
Tímarit Máls og menningar Sumarhúsum með dauðvona Ástu Sóllilju í fanginu og börn hennar og ömmu í eftirdragi, útilegumaðurinn uppmálaður? Það kemur nú í ljós að Felsenborgarsögur, „hræsnisfullur bruna- samsetníngur eftir nafnlausa þýskara frá 18du öld“, er gamall kunn- ingsskapur Halldórs frá bernsku, „úr eigu Böðvars lángafa míns“. En drengurinn „vissi ekki fyren róbínsonaróðurinn og reisubókin í þessari druslu síaðist inní mig og ég var farinn að skrifa svona sjálfur“ (T 195). Laxness notfærir sér þetta honum gamalkunna efni snilldar- lega þegar hann lætur í fyrsta bindinu um Ljósvíkinginn lestur Felsenborgarsagna verða sameiginlegt áhugamál þeirra Olafs Kára- sonar sveitarómaga og Magnínu heimasætu, með í senn broslegum og sorglegum afleiðingum í sambandi einmana pilts og jafn einmana stúlku. Bakvið þáttinn um tukthúsvist Olafs í höfuðstaðnum virðast meðal annars liggja endurminningar af æskudvöl höfundarins í Reykjavík. I húsi á Vegamótastíg segist hann oft hafa numið staðar í miðjum stiga og litið útum glugga „sem vissi útí tukthúsgarðinn“, til að „gá að mönnum sem voru að bæta fyrir brot sín með því að lifa rólegu og skemtilegu lífi“. Innanum hóp, „sem bersýnilega saman- stóð af smáglæpamönnum og fíflum sem brjóta búðarglugga sakir algers misskilníngs á glæpamensku", mátti einnig sjá þar ögn stór- kostlegri glæpamann, sem dvaldi í þessum stað til lengri tíma: „Hann var þarna þegar ég gáði fyrst útum stigagluggann og hann var þarna líka þegar ég gáði síðast; ég sé hann nákvæmlega fyrir mér enn“. En Halldór „lék Bach á orgelið“ í húsinu á Vegamótastíg í fullri vissu þess að hann væri þar með að skemmta „einnig þessum glæpamanni, hvortheldur hann hafði nú falsað steðja eða drepið mann“. „Nú er lángt síðan“, segir höfundurinn, „en tíðum verður mér litið um hæl með altaðþví trúarlegri heimþrá til þessara múra sem voru ekki ókleifir nema í þykjustunni; og til þessa eina manns“ (S 129-30). Þessi reynsla hans í æsku hefur greinilega verið lifandi í huga hans, þegar hann samdi mörgum árum seinna tukthúsþáttinn í Fegurð himinsins. Það er sama sérkennilega og dularfulla sam- blandið af ró og trega, jafnvel af eilífð hinumegin tímans, bæði í skáldsögunni og endurminningunni um „veruleikann". I fyrsta kafla Brekkukotsannáls segir innvirðulega frá klukku heimilisins, smíðaðri af „herra James Cowan sem li'fði í Edínaborg 176
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.