Tímarit Máls og menningar - 01.05.1982, Síða 59
„I túninu heima"
árið 1750“. Hún þykir drengnum Alfgrími geyma í tifi sínu „merki-
legt kvikindi", sem sé ef til vill eilífðin sjálf (9-10). En í kafla um
„Frændsemi við klukku“ í Sjömeistarasögunni rekur nú Laxness að
hætti harðsvíraðra ættfræðinga ævisögu klukku með „silfurskæran
hljóm“ (123) sem var einu sinni smíðuð af James Cowan í Skotlandi á
átjándu öld og lenti að síðustu gegnum marga ættliði í eigu Hall-
dórs. Móðir hans gaf honum gripinn þegar hann „flutti á Vesturgötu
28 árið 1940“: „Þannig á ég til frændsemi að telja við þessa klukku.“
(118) Klukkan í Brekkukoti, með sínum eilífðartón, hefur verið
kunningi höfundarins frá bernskuárum.
„Það var ljósmynd þessarar konu sem ég hafði fyrir mér þegar ég
var að gera tilraun til að lýsa Uu í Kristnihaldi." (T 158-59) En mynd
sú var af Sigríði Jónsdóttur úr Vogum, móður Jóns Sveinssonar,
„Nonna“. Hvað á móðir Nonna, eða mynd hennar, skylt við Uu,
þessa hálfgerðu huldukonu? „Hver sem virðir fyrir sér ljósmynd
Sigríðar úr Vogum frá blómaskeiði ævi hennar geingur þess ekki
dulinn að myndin er af glæsilegum kvenskörúngi einsog einlægt
hafa verið á Islandi, og ekki í fornsögum einum; þó stundum kanski
ekki nema ein og ein á öld.“ Sjaldgæfur glæsileiki og skörungsskapur
eru þá sameiginleg einkenni þessara kvenna. En önnur og kannski
áþreifanlegri atriði koma einnig til greina. Ua dvelur um langan tíma
í Suðurameríku. Frú Sigríður fór að bónda sínum látnum „vestrum
haf og átti þar góðri giftíngu að fagna sem slíkri konu byrjar, og átti
heimili sitt um skeið vestrá Kyrrahafsströnd“ (158). Þar vestra varð
Ua nátengd kaþólskunni, og í Kristnihaldi ræðir hún heima á Islandi
við Umba hin frægu ljóð eftir Jean de la Cruz um sameiningu
sálarinnar („unio mystica") við Guð og samband skáldsins við heilaga
Teresu. Slíkt er ekki vitað um móður Nonna persónulega. Hinsveg-
ar sendi hún son sinn tólf ára gamlan suður í heim í hendur kaþólsku
kirkjunnar, og varð hann með tímanum kristmunkur. Ef til vill hafa
snertipunktar af þessu tæi vakað fyrir skáldinu þegar hann skynjaði
Uu gegnum ljósmynd Sigríðar úr Vogum. Hugmyndatengsl geta
farið leyndari leiðir en svo.
Þannig mætti halda lengi áfram. A víð og dreif bregður fyrir
atriðum og athugasemdum sem varpa ljósi á starfsferil höfundarins
allan. Æskusaga hans veitir okkur fróðlega innsýn í hvernig líf og
reynsla, í stóru sem smáu, umskapast í skáldskap hans og öðlast þar
177