Tímarit Máls og menningar - 01.05.1982, Page 73
Innan og utan við krosshliðið
í næsta tölublaði má lesa nýtt skrif eftir Garðar Hólm, og stóra
myndin er enn fyrir ofan: Innvirðulega og af heitu hjarta flyt ég þeim
feðgum herra útvegs- og dannebrogsmanni Jóni Guðmundssyni
nýlenduvörukaupmanni svo og syni hans stórkaupmanni og
stórriddara G. Guðmundsen fyrir fé sem þessir gáfuðu framfaramenn,
ættjarðarvinir og samlandar mínir létu af hendi rakna þegar úngur
íslendíngur lagði kvíðandi og andvarpandi á bratta sem aldrei áður
var farinn af hérlandsmönnum, enda fátt í malpokanum utan dirfska
vonarinnar. Skilníng á viðleitni lítils dreings sem frá upphafi trúði á
rödd Islands í kór heimsins þakka ég þessum góðu feðgum og sönnu
íslendíngum og dannebrogsmönnum: „það er von mín að íslendíngar
hljóti þann saung sem land þeirra verðskuldar.“ Virðíngarfylst Garðar
Hólm. (112)
Gúðmúnsen myndi þó tæpast fara að standa í slíkum stórræðum í
menningarmálunum aðeins til að upphefja sjálfan sig. Hann hefur
fullan hug á að græða peninga í leiðinni. „Við sem seljum fiskinn",
segir hann, höfum . . .
. . . hafið upp harðsnúna mentunarhandkurru í þjóðlífinu til að sýna
og sanna innávið og útávið að við séum sá aðilji sem ekki aðeins
heisir þann gráa úr sædjúpunum, heldur bindur slaufu á þennan
gemlíng fyrir gervöllum heimi einsog þar stendur: er ging in ein
Wirtshaus hinein um zu Mittag zu essen. (257)
Innávið má nota Garðar Hólm til að vekja þjóðerniskennd með
fólkinu. Það á að vera þjóðerniskennd sem Gúðmúnsen getur stýrt
og stangast ekki á við hagsmuni hans. A þessum tímum var verið að
stofna verkalýðsfélög á mölinni og veitti ekki af að beina hugum
fólksins að þjóðerniskenndinni. Mögulega yrði verkafólki Gúð-
múnsen líka sultarlífið og þrældómurinn hugstæðari ef saltfiskurinn
hefði slaufu. Og í samræmi við þetta hlutverk Georgs Hanssonar
sem verðandi þjóðarstolts Islendinga er honum fengið lista-
mannsnafnið Garðar Hólm, sem óneitanlega minnir á hið forna nafn
Islands, Garðarshólmi.
Útávið er Garðari ætlað annað hlutverk sem Gúðmúnsen hefur
líka hugsað til hlítar. Saltfiskurinn hans er góð vara og dýr í
flutningum en það skiptir ekki höfuðmáli. Saltfiskurinn er svolítið
hlægileg vara og seljendur hans eru kallaðir „saltfisksgreifar" — þeim
191