Tímarit Máls og menningar - 01.06.1984, Page 33
Draumur um betri tíma
mörgum eins sterkan svip af hringlaga endurtekningu og af beinni framrás.
Arið getur verið fullt eins mikið ferð um troðnar slóðir, hátíðir, sumarleyfi,
árstíðaskipti, eins og það er liður í endalausum tíma. Trúlega eru það þeir
sem taka ákafast þátt í sókninni fram og upp (eftir einkunnum, frama,
auðsöfnun) sem finna mest fyrir þvingun hins línulaga tíma.
Tímaleysi
Það eru til enn fleiri tímar. „Það voru góðir tímar,“ segjum við, eða við
tölum um skemmtilega tíma, erfiða tíma, tíma fulla af fyrirheitum. Þetta er
sá tími sem við lifum sjálf. Hann geymir reynslu og ber ólíkan blæ. Þessi
tími á sér athvarf í afkimum sem tungumál framleiðslunnar og valdsins
hefur ekki troðið sér inn í. Um hann tölum við til dæmis þegar við segjum
að tíminn líði hratt eða hægt. Það getur jafnvel verið viðeigandi að segja að
tíminn hafi staðið kyrr. Og svo merkilegt sem það er, þá er það sá tími sem
„varla drattaðist úr sporunum" sem virðist stystur í endurminningunni.
Þessi tími stillir hraðann eftir aðstæðunum, hann lagar sig að okkurl Því hér
er það lífsnautnin frjóa sem ákveður hraðann, enginn opinber mælikvarði.
Þessi tími getur tekið á sig svipaða mynd og myndaalbúm fjölskyldunnar.
Hann er gerður af minnismyndum sem hver hefur sína margvíslegu þýð-
ingu. Myndirnar eru flestar af fermingarveislum og skemmtiferðum; þar
hleypa þær ofsahraða á tímann, og þessi hraðaskeið verða eins og eyjar í
hafsjó viðburðalauss hversdagslífs — lífs án tíma samkvæmt skilningi
albúmsins.
I hversdagslegum draumaheimi okkar (vikublöðum, dægurlagatextum)
má finna nokkur ofnotuð ummæli um að „lifa á líðandi stundu", að „grípa
eilífðina í augnablikinu“ og fleira af sama tagi. Er þetta nokkuð annað en
draumur um að hinn „lifaði tími“ verði tekinn fram yfir aðra tíma — tíminn
sem við ráðum yfir, sá sem getur stansað og beðið eftir okkur?
Frasar af þessu tagi eru neistar af hugmyndum um annars konar líf. Þeir
kvikna umfram allt af listrænni reynslu, ástalífi, barnaleikjum, útivist í
óspilltri náttúru, draumum og hugmyndaflugi — einhverju sem ekki er tæki
í þjónustu neins annars heldur verður heilt og fullkomið meðan það gerist.
Draumar um „aðra tíma“ eru þannig sprottnir af þekkingu á annars konar
tíma og annars konar hátterni — þeir vísa til möguleika sem fólk hefur
reynt.
Landamxri
Við ergjum okkur oft yfir því hvernig fólk í fjarlægum þjóðfélögum fer með
tímann (vinnan gengur ekkert, enginn er stundvís o. s. frv.). Það getur verið
263