Tímarit Máls og menningar - 01.06.1984, Blaðsíða 53
Sidfradi gagnrýninna félagsvísinda
hugsunar og félagslegrar starfsemi. Félagslegur veruleiki hverrar þjóöar býr
yfir möguleikum sem hægt er að nýta ef allir hugsandi menn vinna saman að
því markmiði. Ef ábyrgðarleysi og auðsveipni einkenna gerðir fræðimanna
er hins vegar líklegt að þjóðin staðni og henni hnigni.
Fræðimenn og kennarar hafa tækifæri til þess að hafa áhrif á gang
mikilvægustu félagsmála með tvennum hætti: annars vegar beinlínis með
athöfnum sínum og hins vegar óbeinlínis með því að mennta þá sem vilja
breyta heiminum.
Starfsemi af þessu tagi rýfur löggenga atburðarás blindrar sögulegrar
framvindu og á það skilið að kallast „sköpun sögunnar“ eða einfaldlega
„virk starfsemi“: praxís.
Vilhjálmur Arnason þýddi
Athugasemdir
1. Abraham Maslow, Toward a Psychology of Being (New York: Van Nostrand
Reinhold, 1968), bls. 157.
2. Russell, Einstein, „Appeal for the Abolition of War, Sept. 1955,“ í Grotsius og
Rabinowitch (ritstj.), The Atomic Age (Ncw York og London 1963), bls. 535 —
41.
3. I grískri hugsun gætir mjög ríkrar skynsemishyggju en hún er gjörólík hinni
köldu, tæknilegu skynsemi sem einkennir nútíma vísindi. Samkvæmt Platóni er
sönn heimspekileg ástríða undirrót allrar heimspeki.
Mihailo Markovic er prófessor í heimspeki við Belgradháskóla í Júgóslavíu og
meðlimur í Serbísku vísindaakademíunni. Meðal bóka hans má nefna Dialektik der
Praxis, From Affluence to Praxis og The Contemporary Marx. Hin síðastnefnda er
safn greina um „mannúðlegan marxisma“ og meðal þeirra er greinin hér á undan,
„Ethics of a Critical Social Science", sem birtist upphaflega í lnternational Social
Science Joumal volume XXIV, no. 4, 1972.
Prófessor Markovic er einn úr hópi júgóslavneskra heimspekinga sem hafa barist
gegn stalínismanum og dólgamarxisma í hvaða mynd sem er og teflt fram gegn
honum hugmyndum um mannúðlegan sósíalisma. Ahersla þeirra á kröfu Marx um
„látlausa gagnrýni á allar ríkjandi aðstæður" hefur ekki alltaf átt upp á pallborðið hjá
stjórnvöldum í Júgóslavíu, en vegna samstöðu sinnar og festu hefur hópurinn haldið
velli. Þau viðhorf sem fram koma í „Siðfræði gagnrýninna félagsvísinda“ eru um
margt dæmigerð fyrir afstöðu þessa hóps.
Mihailo Markovic hefur tekið virkan þátt í ýmsum alþjóðasamtökum fræðimanna
um frið og mannlegar framfarir. Ásamt félögum sínum við heimspekideild Belgrad-
háskóla stofnaði hann tímaritið Praxis árið 1964, en það kemur nú út á Englandi
undir ritstjórn Richards J. Bernstein og Mihailos Markovic. I rúm 20 ár hefur júgó-
slavneski praxíshópurinn einnig starfrækt Korkcula sumarskólann sem er vettvangur
þjóðfélagslegrar umræðu meðal marxískra heimspekinga á Vesturlöndum. — V.A.
283