Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1984, Page 91

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1984, Page 91
Barnið Þetta var góður maður og hann sprautaði hana. — Gefðu henni aðra til, bróðir, ég á Zölu svo margt að þakka. — Hann gaf henni aðra. Húðin á henni var eins og límd við beinin . . . hún var ekkert nema skinnið og beinin, já frænka, þannig var Zala orðin. Otrú- legt . . . Ef þú hefðir séð hana með eigin augum, þá hefðir þú sagt: — Þetta er ekki Zala. — Ef þú hefðir séð hana með eigin augum. Eg settist aftur upp í kerruna í hádegishitanum. Það var eins og jörðin öll væri að springa úr hita. Við lögðum af stað heim. Ef hún er að deyja, sagði ég við sjálfan mig, þá er best að hún deyi heima. Það var óbærilega heitt, hitinn var svo hræðilegur að það var eins og allt stæði í ljósum logum. Við vorum varla komin hálfa leið þegar Zala reis allt í einu upp við dogg. Hún ætlaði að segja eitthvað, en höfuð hennar hné aftur út af. Eg heyrði hana hvísla: — Við sem vorum loksins orðin . . ., barnið mitt . . . Hún sagði það svo blíðlega, svo undur lágt . . .“ „Og hún sem var loksins farin að vinna fyrir sjálfa sig,“ skaut Djennet inn í. „En örlögin ráða. Aumingja Zala mín.“ „Augu hennar ranghvolfdust. Eg sá að hún dró ekki lengur andann. Ekkert hljóð heyrðist. Barnið var í fanginu á henni. Sólin þrýsti sér inn í höfuðið á mér. Mér leið svo undarlega. Svo varð allt svart. — Þegar ég rankaði aftur við mér, hvað sé ég, ég ligg á jörðinni, þakinn ryki frá hvirfli til ilja og með verki um mig allan. Hestinn og kerruna var hvergi að sjá. Eg stökk á fætur og hljóp af stað í óþolandi hitanum. Ef hestarnir hafa nú dregið kerruna út í ána, hugsaði ég . . . Ævi hennar hafði verið eintómt basl. Líkið má að minnsta kosti ekki vanhelgast, sagði ég við sjálfan mig. Barnið má ekki verða fuglum og úlfum að bráð, þótt það deyi sjálfsagt. Getur barn lifað án móður sinnar? Það er nógu erfitt að halda lífinu í barni sem á móður. A hlaupunum litaðist ég um til að jgá hvort barnið hefði dottið af kerrunni einhvers staðar á leiðinni. Eg hljóp og hljóp, þar til ég sá hvar fólk hafði safnast saman í miðju þorpi. Hvaða þorpi? Eg veit það ekki. Það var bara þorp. Svo þéttur hópur fólks að saumnál hefði ekki fallið til jarðar ef hún hefði verið látin detta ofan á þvöguna. Eg heyrði orðið „dáin“, og tróðst inn í hópinn. Kerran var í miðjunni og barnið enn í fangi móður sinnar. Andlit þess var þakið ryki, augun lokuð. Konurnar grétu. Eg veit ekki hvað þorpið heitir. Konurnar grétu og grétu. 321
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.