Tímarit Máls og menningar - 01.06.1984, Page 94
Tímarit Máls og menningar
sig. Hann má ekki tapa öllu vegna þessa barns. Hvað segir þú,
Músdúlú? Hefurðu ekkert til málanna að leggja, sonur?“
Músdúlú hreyfði sig ekki, en sat hljóður og niðurlútur.
„Það er ekki á hverjum degi sem maður á kost á því að gera góð-
verk,“ ítrekaði frændinn. „Vertu viss, guð mun áreiðanlega þlessa þig
fyrir þetta. Þú opnar fyrir þér hlið himnaríkis. Ef konan þín gefur
barninu ekki mjólk deyr það. Þú bjargar lífi, hjálpar því til að lifa.
Sjáðu hvernig það grætur, eymdin litla. Getur hjarta manns dauf-
heyrst við slíku?“
Músdúlú reis á fætur og gekk til dyranna. Hann steig öðrum fæti
yfir þröskuldinn, sneri sér síðan við.
„Veli aga,“3 sagði hann snöggt, „hver sagði þér að konan mín væri
leiguþý? Hún er ekkert leiguþý.“
Hann rauk út í fússi.
Ismail þaut á fætur og flýtti sér á eftir honum með framréttar
hendur. „Bróðir, bróðir, gerðu þetta ekki, það er illa gert!“
Frændi hans greip um handlegg hans. „Góði, vertu ekki að þrá-
biðja þennan tíkarson. Ekki einu sinni þó að líf sé í veði. Þú ert
orðinn eins og kona, hvað hefur komið yfir þig? Barnið deyr þá
bara,“ sagði hann og benti í átt til konu sinnar. „Þessi kona hefur
jarðað sextán börn. Þau voru ekki lík þessu barni, heldur heilbrigð og
falleg.“
„Drengurinn minn,“ sagði Djennet gamla. „Þú ert ekki með sjálf-
um þér. Þetta er bara ungabarn . . . og ekki einu sinni mánaðargam-
alt. Þú giftist aftur . . . Guð mun gefa þér önnur börn. Sé barninu
ætlað að deyja, þá deyr það. Eg hef jarðað sextán. Hvernig hef ég
tekið því? Eg hef gefið jörðinni svörtu sextán börn. Þú giftist aftur.
Guð gefur þér önnur börn. Hafðu ekki svona miklar áhyggjur, barn-
ið mitt. Það endar með því að þú veikist sjálfur, núna í sumarhitan-
um. Og það á þessum annatíma. Gerðu ekki út af við þig.“
Andlit Ismails varð náfölt. Djennet breytti um svip, varð hugsi.
„Bíðum við,“ sagði hún við sjálfa sig. „Bíðum við. Halta Emine,
ein . . . Huru, tvær . . . Halta Emine, Huru . . . ekki fleiri. En mjólk
þeirrar höltu er eitruð. Ekkert barna hennar hefur lifað. Eins lengi og
3 Aga hefur hér merkinguna eldri bróðir, er notað sem ávarpsnafn í virðingarskyni
þegar menn ávarpa sér eldri menn.
324