Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1993, Page 113

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1993, Page 113
sjálfsagður foringi þeirra þetta langa og heita sumar. Það er Benjamín sem segir söguna í fyrstu persónu. Frásögn hans er í þátíð, hröð, eðlileg og tilgerðarlaus, hvergi teygður lopi en þó öllu nákvæmlega lýst sem máli skiptir. Það er hinn fullorðni sögumaður sem hefur yfírsýnina og orðaforðann, en sýnin er drengsins: Guðlaug átti þann stærsta kött sem sést hafði í bænum. Hann líktist frekar ljónsunga en ketti þar sem hann sat í hásæti sínu, eldhús- glugganum, og horfði áhugalaus á veröldina fyrir utan. Hann hét Bólu-Hjálmar í höfuðið á uppáhaldsskáldinu hennar Guðlaugar. . . . Hafi eitthvert dýr verið þess umkomið að sýna mannfólkinu fullkomna fyrirlitningu, þá var það hann. Jafnvel þótt stór hópur af krökkum væri að hlaupa fram og aftur um leikvöllinn, þá gekk hann hægum skrefum beina leið í gegnum hópinn og vék ekki úr vegi fyrir neinum. Og af einhverri óttabland- inni virðingu fyrir þessum feita risaketti hættum við hlaupunum og biðum á meðan hans hátign gekk hægum skrefum yfir leik- völlinn, á kvöldgöngu sinni út í myrkrið, líkt og hér væri þjóðhöfðingi á ferð, biskup eða virðulegur munkur. (11-12) En við og við koma innskot í ffásögn Benja- míns, eins og snögg myndleiftur, filmubútar úr kvikmynd. Þau eru í nútíð og sögð í þriðju persónu og sýna annars vegar inn í hug annarra persóna en Benjamíns eða atvik sem hann er ekki vitni að, og hins vegar drauma Benjamíns sem hann man stundum ekki nema óljóst þegar hann vaknar: Benjamín stendur aleinn einhvers staðar úti á víðavangi og horfir í kringum sig. Lengst í fjarska eru há fjöll sem rísa með snævi þakta tinda upp í bláan himininn. Hann verður var við hreyfmgu við sjóndeildarhringinn og þegar hann horfir þangað sér hann að þetta em fjórir hestar sem koma á harðahlaupum. Risastórir hófamir falla hljóðlaust til jarðar. Á baki þeirra sitja fjórir riddarar í skínandi herklæðum. Innskotin eru stutt og trufla söguna merkilega lítið, sjálfsagt vegna þess hvað stfllinn á þeim er ólíkur frásögn Benjamíns, en þau opna sög- una mikið, gera hana markvissari. Fólkið í sögunni Eins og áður sagði sver Benjamín dúfa sig í ætt við klassískar drengjasögur. Drengirnir fjórir leika fótbolta þetta sumar, hrekkja hrekkjusvín- ið og stofna leynifélag, Reglu rauða drekans, gegn ranglæti, með réttlæti. Framan af hefur reglan engin sérstök markmið; félagamir æfa sig bara í að skylmast með trésverðunum og beita skjöldunum. í þessu millibilsástandi verð- ur sá athafnasamasti í hópnum óánægður með tíðindaleysið og segir sig úr reglunni. Þegar hann vill svo koma aftur er honum útskúfað. Hann stofnar þá ásamt öðrum leynifélagið Svörtu fjöðrina sem hefur það hlutverk eitt að koma Rauða drekanum fyrir kattarnef. En þegar þar er komið sögu hefur Rauði drekinn fengið göfugt markmið: að safha fé til að endurbyggja hús Guðlaugar ,,ömmu“ sem brann. Það er ekki fyrr en því verki er lukkulega lokið að Rauði drekinn mætir Svörtu fjöðrinni í dimmum Slippnum eitt kalt haustkvöld. Strákar í stríði? Nei, frásagnarhátturinn og persónusköpunin valda því að frásögnin í Benjamín dúju er aldrei einföld. Persónur drengjanna eru sérstaklega vel unnar, marg- hliða og sannar. Smám saman verða þeir fulltrú- ar ákveðinna manngerða, um leið og þeir dýpka sem einstaklingar. Mesta rækt leggur höfundur við persónu Benjamíns, með því að fara næst honum og sýna honum mesta hörku. Benjamín er góður strákur — það eru þeir flestir, en hann er heigull. Hann er sá sem tekur ríkjandi ástandi og reynir að laga sig að því en dettur ekki í hug að rey na að breyta því, hvorki til ills né góðs. Viðkvæði hans er að það sé ekkert hægt að gera. Sem reglubróðir velur hann sér dúfuna að merki, friðartáknið sem þó hefur vafasamari undirmerkingu — því dúfan er grimmt dýr sem flæmir úr sínum hópi TMM 1993:1 103
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.