Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1999, Page 69

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1999, Page 69
Sigurður A. Magnússon Ernest Hemingway (1899-1961) Ernest Millar Hemingway átti einhvern ævintýralegasta feril sem um getur, í lífi jafnt sem list, og var löngu orðinn þjóðsagnapersóna um víða veröld þeg- ar hann svipti sig lífi sumarið 1961, aðeins rúmlega sextugur. Ekki einasta var hann meðal áhrifamestu rithöfunda aldarinnar, sæmdur Nóbelsverðlaun- um árið 1954, heldur var hann svo fjölhæfur athafnamaður að leitun mun á öðrum eins. Hann var meðal margs annars fréttaritari, sjúkraliði, hnefa- leikamaður, nautabani, hermaður, fiskimaður, villidýraveiðimaður og ann- álaður kvennamaður. Hann var einn örfárra manna á öldinni sem tóku virkan þátt í fimm styrjöldum og slapp hvað eftir annað úr bráðum lífsháska, stundum með nálega yfirnáttúrlegum hætti. Enda bar líkami hans mörg ummerki ævintýralífsins sem hann lifði til hinstu stundar. Hetjuskapur var honum í blóð borinn og hann kunni hvergi betur við sig en í hita bardagans. Síðasta kona hans, Mary Welsh sem hann kvæntist 1945, sagði um hann skömmu eftir lok seinni heimsstyrjaldar: „Hann er oftlega bölvaður viðskiptis núna síðan stríðinu lauk. Sjáið þér til, hann á þess lítinn kost að sýna hetjuskap á friðartímum.“ Þannig var hann ævilangt: ekkert nema áhætta og athöfh fengu friðað órólega sál hans. Sjúkraliðinn Árið 1918 komst Hemingway fýrst í verulegt návígi við veröld athafna og af- reka. Hann var 17 ára og jötunn að burðum þegar Bandaríkin skárust í leik- inn í fyrri heimsstyrjöld, en mein í auga, sem hann hafði hlotið á hnefaleikaæfingu, olli því að hann taldist ekki tækur í herinn. Hann beið samt átekta og gerðist fréttaritari fyrir Kansas CityStar. Þegar hann fékk veð- ur af liðssöfnun Rauða krossins í því skyni að fá unga og hrausta menn til að aka sjúkrabílum á Ítalíu, þá beið hann ekki boðanna og lét umsvifalaust skrá sig. Þetta var vorið 1918 og meinsemdin á vinstra auga var álíka hemill og snærisspotti uppí göldum fola. Hápunktur þessa fýrsta kafla í athafnasögu Hemingways varð 8unda júlí sama ár. Hann hafði aðsetur á Norður-Ítalíu TMM 1999:2 www.mm.is 67
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.