Tímarit Máls og menningar - 01.06.1999, Síða 112
GUY DE MAUPASSANT
„En þar sem þið fóruð framhjá ffamvarðarsveitunum eruð þið
áreiðanlega með lykilorð til þess að komast til baka. Gefið mér upp
lykilorðið og ég veiti ykkur grið.“
Vinirnir tveir stóðu hlið við hlið, náfölir og bönduðu taugaóstyrkir
frá sér skjálfandi höndum, en þögðu.
Liðsforinginn endurtók: „Það kemst enginn nokkurn tíma að því og
þið getið farið til baka í friði. Leyndarmálið verður grafið og gleymt með
ykkur. Ef þið neitið þessu þá bíður ykkar dauðinn og það strax. Veljið!“
Þeir stóðu hreyfingarlausir og án þess að opna munninn.
Prússinn var alltaf jafn rólegur. Um leið og hann benti í áttina að
fljótinu sagði hann: „Gerið þið ykkur grein fyrir því að eftir fimm mín-
útur eruð þið á botni árinnar. Eftir fimm mínútur! Þið hljótið að eiga
þölskyldu, er það ekki?“
Frá Valerien-hæðinni heyrðust sífelldar fallbyssudrunur.
Veiðimennirnir tveir stóðu teinréttir og þögulir. Þjóðverjinn gaf
skipanir á móðurmáli sínu. Síðan flutti hann stólinn til þess að hann
yrði ekki of nærri föngunum. Tólf hermenn komu og stilltu sér upp 20
skref ffá þeim í réttstöðu með rifflana við fót.
Liðsforinginn endurtók: „Ég gef ykkur eina mínútu, ekki tvær sek-
úndur fram yfir það“.
Síðan stóð hann skyndilega á fætur og gekk að Frökkunum tveimur,
tók Morissot undir handlegginn, dró hann lengra frá og sagði við
hann í lágum hljóðum: „Fljótir nú, hvað er lykilorðið? Félagi yðar fær
ekkert að vita um þetta, ég læt eins og ég hafi séð aumur á yður.“
Morissot svaraði engu.
Prússinn dró síðan Sauvage til hliðar og spurði hann sömu spurn-
ingar.
Sauvage svaraði engu.
Þeir stóðu aftur hlið við hlið.
Liðsforinginn gaf fyrirskipun. Hermennirnir lyftu rifflunum.
I sama mund leit Morissot af tilviljun á netpokann, fullan af fiski,
þar sem hann lá í grasinu, nokkur skref frá honum.
Sólargeisli glitraði í fiskhrúgunni, sem kvikaði ennþá. Morissot var
yfirbugaður og þó að hann reyndi að harka af sér fylltust augu hans
tárum.
Hann sagði í lágum hljóðum: „Vertu sæll, herra Sauvage“.
110
www.mm.is
TMM 1999:2