Tímarit Máls og menningar - 01.06.1999, Page 125
SKÁLDSKAPUR Á SKÖKKUM STAÐ
undarrétt fögnuðu sigri og þótti varnarorð Roll X vera þverstæða:
„höfundarrétturinn er skerðing á tjáningarffelsi listamanna“14. X/Coyne/
Fuego gat ekki borgað og sat ár í skuldafangelsi auk þess sem hann var gerður
gjaldþrota. Hann ákvað að verja lífi sínu í að berjast gegn höfundarréttinum.
Og samtök Fuegos hafa síður en svo runnið út í sandinn. Lærlingur hans að
nafni Stephen Glass olli nú nýverið talsverðum usla á Bandaríkjunum með
upploginni grein í tímaritið The New Republic.15 Greinin segir ffá 15 ára
gömlum tölvuþrjót, Ian Restil, sem brýst inn í gagnagrunn Jukt Micronics,
stórs hugbúnaðarfýrirtækis, en hvort tveggja er tilbúningur. Glass var fast-
ráðinn hjá The New Republic en svo sannfærður var hann um hugmyndir
Fuegos að hann tók áhættuna og var síðan rekinn fýrir uppátækið. í The
Washington Post birtist ítarleg yfirlitsgrein um Fuego 22. júlí 1998 þar sem
Nigel Holmes kallaði Fuego „hinn algera póstmódernista“. „Hann er sá sem
hefur raungert hugmyndir stefnunnar" segir Holmes.
5
Á ákveðnum tímapunkti er einsog samskipti Cristoforos og Hallgríms brjóti
niður múrinn sem skilur að skáldskap og veruleika, sama múr sem Fuego
hefur að markmiði sínu að brjóta niður:
Mig dreymir um að brjóta niður múrinn sem skilur að sannfræði og
skáldskap. Hann er fýrir löngu orðinn dragbítur á alla skapandi hugs-
un. Ég upplifi mig hvorugum megin við múrinn: ég er ekki skáld að
brjóta niður múrinn yfir í veruleikann frá skáldskapnum séð og ég er
heldur ekki sagnfræðingur, fræðimaður eða blaðamaður að krafsa í
hann glufur til að seilast eftir skáldaleyfi. Ég upplifi mig einsog ég hafi
verið múraður inni. Allt hugsandi fólk er múrað inni í veggnum
mikla. Líf okkar veltur á því að okkur takist að brjóta hann niður.16
Hallgrímur var ekki múrbrjótur í neinum skilningi. Höfundarrétturinn var
honum ekki neinn veggur; hann hagar sér einsog ffjáls maður, flögrar fram
og til baka yfir svæðið þar sem múrarnir ættu að standa. Það er einsog hann
renni ekki grun í hversvegna Cristoforo hafði reiðst; hann virðist hafa haldið
að Cristoforo væri að ásaka sig um að hafa stolið málverkinu í verklegum og
veraldlegum skilningi þess orðs. Hann skrifaði Cristoforo:
Ég hefi ekki stolið einu eða neinu frá yður og ef þér hyggist standa við
fáránlegar fullyrðingar yðar er yður vænst að færa á þær einhverjar
sönnur en halda yður saman ella. í mínu heimalandi eru ómenni eins
og þér barðir í götuna fýrir mun minni sakir en heilaspuna af þessu
tagi.17
TMM 1999:2
www.mm.is
123