Tímarit Máls og menningar - 01.09.2000, Síða 6
ELSE LIDEGAARD
geðinu, lífgar andann. Sagt er að það sé
mannbætandi að hlusta á góða tónlist, og
það er örugglega rétt. Við verðum betri
menn við að sökkva okkur ofan í góða list.
Mikil list leiðir einstaklingnum fyrir sjónir
að hann stendur ekki einn heldur er hluti af
heild og að hann glímir við sama vanda og á
sömu þrár og aðrir menn. Listin vekur
gleði og viðkvæmni, mannlega samúð
fólks. Og oít einnig hneykslun, mótmæli.
Og það er að mínu mati helsta hlutverk list-
arinnar í tilverunni.
-Krefst listinfórna af listamanninutn?
Já, aðallega mikillar vinnu, óendanlega
mikillar vinnu. Listamaðurinn er sístarf-
andi þótt hann sé ekki að skrifa eða mála,
hann er alltaf að vinna nema þegar hann sefur. En þá eru draumarnir og und-
irmeðvitundin að störfum, starfsdeginum lýkur aldrei. En á hinn bóginn
getur verið hvíld í því að skrifa, og gleði, einkum þegar sér fyrir endann á
verkinu. Að hreinrita bók til dæmis, er mikil gleði og upplifun.
*
-/Turninum á heimsenda segirðu, aðþúkunnir best við aulabárðana. Afhverju?
Það getur vel verið að ég kunni best við aulabárðana. Sjálfúr er ég aulabárður.
En ég dáist einnig að athafnafólki, ég trúi því að vilji menn koma pólitískum
málum í gegn þá séu nauðsynlegar forsendur þess bæði hugmyndaffæði og
stjórnmálaflokkur. Og það er nauðsynlegt að halda uppi flokksaga. En slíkur
agi getur auðveldlega komið í veg fyrir andlegan hreyfanleika og persónuleg-
an þroska. Þarna hef ég alltaf orðið að melda pass og hef aldrei getað gengið í
neinn stjórnmálaflokk. En ég hef alltaf verið mjöghallur undir vinstristefnu.
-Sú stjórnmálabarátta semframfer íDanmörku snýstað miklu leyti um efnahags-
mál en þú lýsirvíða í bókum þínum eyðileggjandi mœtti peninganna. Berjumstvið
á röngum vígstöðvum með því að leggja slíka áherslu á efnahagsmálin?
Það veit ég nú ekki en það er ljóst að þegar hlutirnir snúast að mestu leyti um
peninga þá er það á kostnað mannlegra samskipta. Við búum við kapítalískt
kerfi sem einungis leiðir til ffekari kapítalisma, og það er það sem ég kann
ekki við. Auðvaldið er óhugnanlegt vald.
Þú skrifar einnig íTurninum á heimsenda um Merrit sem gat blásið rigningu
Vitringurinn. William Heinesen
77 ára.
4
malogmenning.is
TMM 2000:3