Tímarit Máls og menningar - 01.09.2000, Page 58
MALAN MARNERSDÓTTIR
Færeyjar þróuðust eftir afnám einokunarverslunarinnar 1856 á
skömmum tíma úr miðalda- og í nútímasamfélag. Verslunarrekstur
verður nú mögulegur, samtímis sem bylting verður á lífskjörum Fær-
eyinga og upp úr þeim jarðvegi sem nú myndast spretta ýmsir sértrú-
arflokkar, en einmitt þeir gegna heilmiklu hlutverki í mörgum af
verkum William Heinesens. Styrjaldarárin voru líka öðruvísi í Fær-
eyjum en á móðurlandinu. Eyjarnar voru hersetnar af Bretum og
mönnum gáfúst ríkuleg tækifæri til að hagnast á siglingum sem hins-
vegar stefndu lífi sjómanna í hættu. Þetta er baksvið fyrstu skáldsögu
Heinesens eftir heimsstyrjöldina.
Bd. 8 bls. 68.
Peter Madsen afgreiðir sögulega, samfélagslega og menningarlega þróun í
rúma öld í einni málsgrein, en hann leggur áherslu á það sem William
Heinesen lýsir í skáldsögunum - trúmál og stríðsárin.
En hversvegna er afnám einokunarverslunarinnar nefnt í ákveðinni mynd
og með ártali? Venjulegur danskur lesandi veit varla um hvaða verslun er að
ræða. Konunglega verslunin gegnir miklu hlutverki í Detgode háb en auðvit-
að ekki afnám verslunarinnar, því skáldsagan gerist á 7. og 8. áratug 17. aldar.
En þegar Peter Madsen fjallar um Detgode háb nefnir hann ekki verslunina á
nafn, ekki frekar en samfélagsaðstæður á tímum Lucasar Debes. Einokunar-
verslunin er söguleg klisja sem á að sýna að Peter Madsen veit sitthvað um
sögu Færeyja.
í nýju dönsku bókmenntasögunni er lítið gert úr skyldleika Williams
Heinesen við aðra danska rithöfunda. Á sama hátt og Torben Brostrom
skipar Ib Bondebjerg honum á bekk með Paul la Cour og leggur Noatun að
jöfnu við Fiskerne eftir Hans Kirk. Peter Madsen segir að William Heinesen
haft með Den sorte Gryde gengið til liðs við það sem hann nefndi sjálfur
„baráttufúsan húmanisma og skynsemishyggju“ (bd. 8 bls. 69) í menning-
arumræðu samtímans. Sú samtímaumræða sem Peter Madsen vísar til
mun vera menningarumræðan í Danmörku eft ir lok síðari heimstyrjaldar.
í því sambandi skrifar hann að William Heinesen tengist Otto Gelsted og
Hans Kirk.
Skáldbræðrum Willams Heinesen í dönskum bókmenntum hefur fækkað
í nýju dönsku bókmenntasögunni. Ljóðin fá litla sem enga umfjöllun, aft ur á
móti eru skáldsögunum gerð nákvæm skil. Lítið er minnst á sögulegt og
samfélagslegt baksvið skáldverka Heinesens og stundum er það sem skrifað
er beinlínis villandi.
56
malogmenning.is
TMM 2000:3