Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Page 21

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Page 21
16 Tímarit um menntarannsóknir, 3. árgangur 2006 Mótun skólastarfs Af þeim sökum var áhugavert að kanna hvort kennarar telja að faglegt sjálfstæði grunnskóla hafi aukist og einnig hvort þeir álíta að eigið faglegt sjálfstæði hafi aukist, en líklegt má telja að þetta tvennt fari saman. Niðurstöður má sjá á 1. mynd. Fram kemur tölfræðilega marktækur munur í svörum kennara við því hversu mikið faglegt sjálfstæði skóla hafi aukist og hversu mikið þeirra eigið sjálfstæði hafi aukist. (χ2(4)=29,55, p<0,001). Af 1. mynd má sjá að um 43% kennara telja að faglegt sjálfstæði skólans hafi aukist undanfarin ár. Aftur á móti telja aðeins 23% þeirra að faglegt sjálfstæði kennara hafi aukist á sama tíma. Af þessu má ráða að kennarar telja að eigið faglegt sjálfstæði hafi ekki aukist að sama skapi og faglegt sjálfstæði skólans. Kí-kvaðrat próf sýnir að hér er munur eftir kynjum. Karlar telja fremur en konur að bæði faglegt sjálfstæði skóla (χ2(4)=11,34, p<0,05) og eigið sjálfstæði hafi minnkað (χ2(4)=14,31, p<0,01). Um 33% karla telja að sjálfstæði skóla hafi minnkað en aðeins um 15% kvenna eru þeirrar skoðunar. Þá álítur 31% karla að eigið faglegt sjálfstæði hafi minnkað en samsvarandi tala fyrir konur er 13%. Ákvarðanir Kennararnir voru beðnir að svara hverjir þeir teldu að bæru ábyrgð á ákvörðunum um mikilvæg málefni grunnskólans. Almennt má segja að þeir álíta að skólastjórar beri meginábyrgð. Á 2. mynd sést að um 60% kennara segjast ánægðir með hver tekur ákvarðanir innan skólans og um 50% kveðast sáttir við hvernig það er gert, þ.e. ákvörðunarferlið. Milli 23 og 25% segjast ekki hafa skoðun á þessu atriði og um 15% segjast óánægðir með það hver tekur ákvarðanir og hvernig þær eru teknar. Kennarar voru einnig inntir eftir því hversu mikinn áhuga þeir hefðu á að taka ákvarðanir um mikilvæg mál í skólastarfi og einnig hversu mikil áhrif þeir teldu sig hafa á sömu málefni. Þeir voru beðnir að meta hvern þátt á kvarðanum 0–10 til að sýna áhuga sinn eða áhrif. Niðurstöður má sjá á 3. mynd. Á myndinni má sjá að víða ber verulega í milli. Kennarar vilja hafa meiri áhrif en þeir telja sig raunverulega hafa. Að meðaltali er þetta bil 2,6 stig. En bilið er afar breytilegt eftir málefnum. Mest er það þegar um er að ræða símenntunaráætlanir (3,9 stig), fjármál (3,8 stig), skipan nemenda í námshópa (3,5 stig) og þróunarverkefni (3,4 stig). Í einu atriði er tölfræðilega marktækur munur eftir kynjum. Það er samstarf við foreldra, þar telja konur (t(257)=2,3, p<0,05) sig hafa meiri áhrif en karlar. Á eftirtöldum sviðum segjast konur vilja hafa meiri áhrif en karlar: samstarfi við foreldra (t(257)=2,7, p<0,05), þátttöku í ákvörðunum um skóladagatal (t(256)=2,7, p<0,01), að móta símenntunaráætlanir (t(253)=2,6, p<0,05) og hafa áhrif á skólanámskrá (t(253)=2,1, p<0,05). Um 14% karla virðast taka þátt í ákvörðunum sem þeir hafa lítinn áhuga á samanborið við 6% kvenna (χ2(4)=10,48, p<0,05). Fylgniútreikningur sýnir að kennarar með stutta starfsreynslu höfðu meiri áhuga en hinir reyndari á að taka þátt í ákvörðunum um kennsluhætti (rs(258)=–0,20, p<0,01) en reyndir kennarar höfðu fremur áhuga á að taka þátt í ákvörðunum um símenntunaráætlanir (rs(258)=0,14, p<0,05) og sérkennslu (rs(258)=0,15, p<0,05). Lítt reyndir kennarar töldu sig hafa meiri áhrif en reyndir á námsmat ((rs(259)=–0,20, p<0,01), kennsluaðferðir (rs(259)=–0,21, p<0,01) og samvinnu við foreldra (rs(259)=–0,16, p<0,05). Á hinn bóginn töldu reyndir kennarar að þeir hefðu meiri áhrif en lítt reyndir á ákvarðanir um kennslu nemenda með sérþarfir (rs(257)=0,17, p<0,01), símenntunaráætlanir (rs(255)=0,15, p<0,05), sjálfsmat (rs(253)=0,14, p<0,05) og þróunarverkefni (rs(254)=0,13, p<0,05). Samvinna Fram hefur komið að í stefnumótunarplöggum er lögð veruleg áhersla á samvinnu kennara
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.