Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Side 36

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Side 36
31 Tímarit um menntarannsóknir, 3. árgangur 2006 Áhrif fræðslu á viðhorf kennara til sam- og tvíkynhneigðra hvors kvarða er því á bilinu 1 (mjög neikvæð viðhorf) til 5 (mjög jákvæð viðhorf). Raja og Stokes (1998) sýndu fram á að áreiðanleiki innra samræmis (Chronbachs alfa stuðull) í stöðlunarúrtaki MHS-L og MHS-G kvarðanna var 0,95. Þekking á sam- og tvíkynhneigð er kvarði sem byggist að mestu leyti á Homosexual Information Scale – HIS, sem Wells og Franken birtu 1987. Upprunalegi HIS–kvarðinn samanstendur af 18 fullyrðingum sem er svarað með því að gefa til kynna hvort fullyrðingin er ,,rétt“ eða ,,röng“ að mati svaranda. Heildarskor á HIS–kvarðanum er fengið með því að leggja saman öll rétt svör. Butler (1999) sýndi fram á að áreiðanleiki innra samræmis HIS– kvarðans væri 0,67 sem er í lægra lagi. Nokkur þessara 18 atriða tengdust bandaríska hernum og lagalegri stöðu samkynhneigðra í Bandaríkjunum og áttu því ekki við um íslenskar aðstæður. Þessar fullyrðingar voru því teknar út og aðrar samdar sem eiga sérstaklega við um aðstæður sam- og tvíkynhneigðra tengdar þessum áðurnefndu atriðum á Íslandi. Sérfræðingur í hinsegin fræðum og íslenskufræðingur gáfu ráð um þessar breytingar. Lokaútgáfa listans hafði að geyma 14 atriði og því eru mögulegar niðurstöður á bilinu 0 (mjög lítil þekking á samkynhneigð) til 14 (mjög mikil þekking á samkynhneigð). Dæmi um fullyrðingar á þekkingarkvarðanum eru m.a.: „Samkynhneigð hefur aukist síðustu 25 árin“ og „á Íslandi hafa samkynhneigðir og gagnkynhneigðir sömu réttarstöðu“. Sértæk viðhorf kennara til samkyn- hneigðar (Educator-Specific Attitudes – EAS) samanstendur af átta fullyrðingum sem ætlað er að mæla sértæk viðhorf kennara til samkynhneigðar innan skólakerfisins og var hannaður af Butler (1999). Fjórar fullyrðingar mæla viðhorf til samkynhneigðra nemenda, t.d.: „Ég væri sátt/ur við að nemandi talaði við mig um kynhneigð sína“ og fjórar fullyrðingar mæla viðhorf til samkynhneigðra kennara t.d.: „Mér þætti óþægilegt ef skólinn minn réði kennara sem væri opinberlega samkynhneigður“. Hverri fullyrðingu er svarað á 4-punkta Likert–kvarða þar sem 1 = mjög ósammála og 4 = mjög sammála. Heildarskor hvers þátttakanda á EAS–kvarðanum var svo fengið með því að leggja saman svör allra spurninganna. Mögulegar niðurstöður voru því á bilinu 8 (jákvæð sértæk viðhorf kennara til samkynhneigðar) til 32 (neikvæð sértæk viðhorf kennara til samkynhneigðar). Í rannsókn Butler (1999) var áreiðanleiki innra samræmis 0,72. Framtíðarhegðun kennara (Anticipated Educator Behaviors – AEB) er listi sem samanstendur af 14 fullyrðingum um viðbrögð kennarans við aðstæðum sem tengjast samkyn- hneigð innan skólakerfisins, t.d.: „Ég myndi taka á því ef nemandi talaði niðrandi um samkynhneigða“ (Butler 1999). Hverri full- yrðingu er svarað á 4-punkta Likert–kvarða þar sem 1 = mjög ósammála og 4 = mjög sammála. Heildarskor hvers þátttakanda á AEB–kvarðanum er fengið með því að leggja saman svör við öllum spurningunum. Mögulegar niðurstöður voru því á bilinu 14 (jákvæð framtíðarhegðun kennara) til 56 (neikvæð framtíðarhegðun kennara). Sýnt hefur verið fram á áreiðanleika innra samræmis upp á 0,74 í upphaflegri útgáfu listans (Butler, 1999). Lýðfræðilegar upplýsingar Auk þess að svara stöðluðum mælitækjum voru þátttak- endur beðnir að veita upplýsingar um ýmsa bakgrunnsþætti. Meðal þess sem spurt var um var aldur, kynferði, trú, kynhneigð og tengsl við samkynhneigða einstaklinga. Framkvæmd Í febrúar 2005 var kennurum skólanna afhent bréf þar sem gerð var grein fyrir í hverju þátttaka þeirra í rannsókninni væri fólgin, auk þess sem lögð var sérstök áhersla á nafnleynd og trúnað við þátttakendur. Þeir einstaklingar sem gáfu upplýst samþykki sitt fyrir því að taka þátt í rannsókninni voru beðnir að svara spurningalistunum og skila þeim í lokuðu umslagi til skólastjóra/aðstoðarskólastjóra skólans. Tveimur vikum síðar var skólastjóra/ aðstoðarskólastjóra sent bréf í tölvupósti sem
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.