Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Page 47

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Page 47
42 Tímarit um menntarannsóknir, 3. árgangur 2006 Námshegðun leiðtoga í unglingabekk í ljósi rannsókna og kenninga um menningarauðmagn Berglind Rós Magnúsdóttir Háskóla Íslands Bourdieu leitaðist við að skýra misgóðan námsárangur og ólíka námshegðun nemenda með kenningum sínum um menningarlegt auðmagn. Sumir fræðimenn telja að ráðandi skilningur og notkun á hugtakinu sé takmarkandi miðað við skilgreiningar Bourdieus, t.d. í þekktri grein hans; „The forms of capital“. Þessi gagnrýni er skoðuð í ljósi íslenskra rannsókna. Út frá þessari almennu umfjöllun er sjónarhorninu beint að námshegðun leiðtoga í unglingabekk, þ.e. stráks og stelpu í 10. bekk. Ávinningur þess að skoða leiðtoga nemendahóps í þessu samhengi felst í því að ætla má að hegðun og viðhorf leiðtoganna sé birtingarmynd þess auðmagns sem er eftirsóknarvert í samfélagi unglingahópsins sem þau tilheyra. Í greininni er því lýst hvers konar námshegðun þótti virðingarverð í hópnum en slíkt virtist mótast talsvert af menningarauðmagni og kynferði. Sjónum er beint að því hvað einkenndi námshegðun og námsviðhorf leiðtoganna, hversu miklu einkunnir skiptu í því sambandi og hvaða hópar virtust hagnast á háum einkunnum. Þá er skoðað hvernig niðurstöður samræmast skilgreiningum og áðurnefndum rannsóknum á menningarauðmagni. Niðurstaða höfundar er sú að það þurfi að endurskoða notkun og skilning á hugtakinu til að öðlast frekari skilning og skýringar á mismunandi náms- og félagsstöðu íslenskra nemenda. Skoða þarf ólíkar víddir hugtaksins í samhengi við viðteknar hugmyndir um karlmennsku og kvenleika innan þess vettvangs sem rannsaka á og ráðandi gildi í menningarumhverfi unglinganna. Bent hefur verið á að við auknar áherslur á árangursskyldu (accountability) skóla gleymist að gera ráð fyrir að verðmætamat unglinga eigi misgóða samleið með gildum skólans og áherslum (Olneck, 2000; Willis, 2003). Unglingar skilgreina sig hver frá öðrum eftir smekk, þekkingu, atferli og leikni á sviðum sem þeim þykja merkileg. Þar sem unglingar hafa lítil efnahagsleg eða pólitísk völd leggja þeir áherslu á valdastöðu sína innan félagahópsins (Milner, 2004). Til að skilja námshegðun og hvaða skilning unglingarnir leggja í námsárangur er athugun á verðmætamati og valdastöðu þeirra lykilatriði. Í þessari grein er rýnt í íslensk gögn úr unglingabekk. Með áðurnefnd atriði í huga er dregið fram hvaða merkingu einkunnir og námsárangur höfðu fyrir leiðtoga af hvoru kyni og hvers konar námshegðun skipti máli varðandi þann sess eða virðingu sem þau höfðu innan bekkjarins. Mikilvægi þess að skoða leiðtoga nemendahópsins felst í því að sá sem nær sterkri stöðu innan hans hlýtur að uppfylla það sem flestir í hópnum telja eftirsóknarverða eða virðingarverða hegðun, þ.e. hegðun og viðhorf leiðtogans er birtingarmynd þess auðmagns sem er eftirsóknarvert í samfélagi unglinganna. Að lokum er rætt um hvernig Tímarit um menntarannsóknir, 3. árgangur 2006, 42–59 Hagnýtt gildi: Í fyrsta lagi getur greinin nýst rannsakendum sem hyggjast nýta sér rannsóknir og kenningar um menningarauðmagn til að varpa ljósi á náms- og félagsstöðu nemenda. Í öðru lagi gæti hún verið áhugaverð fyrir þá sem koma að mótun menntastefnu. Með auknum áherslum á árangursskyldu og gæðamat skóla hafa einkunnir öðlast aukið vægi og því er mikilvægt að fá innsýn í hvort verðmætamat nemenda sjálfra speglast í þeim áherslum. Í þriðja lagi getur hún nýst kennurum og skólastjórnendum til að velta fyrir sér hvers konar námshegðun þykir eftirsóknarverð og virðingarverð og skoða niðurstöður greinarinnar í samhengi við eigin námshópa.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.