Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Side 50

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Side 50
45 Tímarit um menntarannsóknir, 3. árgangur 2006 kvenleika en hafa ekki hlotið vægi í hefð- bundnum skilgreiningum á auðmagni. Það er sú þekking, tengsl og hæfni á tilfinningasviðinu sem mikils er metin innan ákveðins hóps eða tengslanets og einkennist a.m.k. að hluta af tilfinningaböndum. Ólíkt öðrum tegundum auðmagns hefur þessi tegund fyrst og fremst verið tengd einkasviðinu. Reay hefur nýtt tilfinningaauðmagn í rannsóknum sínum á foreldrasamstarfi og þátttöku mæðra í skólum og skólastarfi barna sinna. Færni þeirra á þessum vettvangi virðist hafa ótvíræð áhrif á gengi barna þeirra og virðingu og vægi þeirra sjálfra í skólastarfinu og á sinn þátt í endursköpun stéttakerfisins. Það er því órjúfanlega tengt öðrum tegundum auðmagns. Ein rannsókn hefur verið gerð hér á landi með það að markmiði að flokka nemendur í hópa eftir veruhætti (embodied state eða habitus) út frá kenningum Bourdieus, en það er rannsókn Guðbjargar Vilhjálmsdóttur (2003; 2005) sem hún staðfærði fyrir Ísland. Úrtak hennar er úr hópi 15 ára unglinga á Íslandi. Hún greindi nemendur í fimm ólíka hópa eftir „smekk þeirra á listrænum afurðum og annarri tómstundaiðju“ og skoðaði niðurstöðurnar eftir kyni, stétt og búsetu. Fáir flokkuðust í hóp II: Klassísk tónlist og ljóðlistarunnendur eða 87/911 og það sama má segja um hóp V: Vísindi og bókmenntir eða 155/911 en þess konar smekkur telst samkvæmt ráðandi skilgreiningum gefa mesta virðingu innan skólakerfisins. Í hópi II voru strákar 71 af þessum 87 (87%) og 72% af hópnum voru af höfuðborgarsvæðinu. Hópurinn var mjög vandlátur á tónlist og bókmenntir; hlustaði á klassíska tónlist og jazz, las ljóð og lesefni eins og fræðibækur og um 40% spiluðu á hljóðfæri. Hlutfall drengja í hópi V var 135/155 eða 87%. Þessi hópur horfði á vísindaþætti í sjónvarpinu, las grínbækur, vísindaskáldsögur, tölvublöð, skáldsögur og Íslendingasögur svo eitthvað sé nefnt. Eingöngu nemendur af íslenskum uppruna tóku þátt í rannsókninni. Munur á veruháttarhópum kemur hins vegar mun skýrar fram þegar spurt er um áhuga á ákv. störfum eða menntaleiðum. Þegar önnur hlið menningarauðmagns er skoðuð, þ.e. hin hlutbundna, sýna bandarískar rannsóknir að stelpur eru „meiri“ menningarneytendur en strákar sem felst m.a. í því að þær fara oftar á bókasafnið og sækja frekar danstíma og formlegt tónlistarnám (DiMaggio, 1982; Kaufman og Gabler, 2004). Íslenskar rannsóknir á grunnskólanemendum sýna að stelpur sækja frekar formlegt tónlistarnám, leiklistar- eða myndlistarnámskeið og taka einnig meiri þátt í tómstundastarfi í grunnskólanum en strákar æfa frekar íþróttir (fyrir utan fimleika), hvort heldur með íþróttafélögum, í frímínútum í skólanum eða á eigin vegum (Svandís Nína Jónsdóttir, Hera Hallbera Björnsdóttir, Bryndís Björk Ásgeirsdóttir og Inga Dóra Sigfúsdóttir, 2002; Þórólfur Þórlindsson, Kjartan Ólafsson, Viðar Halldórsson og Inga Dóra Sigfúsdóttir, 2000). Í mælingum á menningarauðmagni í PISA 2000 kom einnig í ljós munur á menningarþátttöku íslenskra stelpna og stráka í þessum skilningi, þ.e. stelpur fóru frekar í leikhús, á söfn eða á bókasafnið (Alþjóðlegur gagnagrunnur PISA 2000,). Samkvæmt þessu virðast hefðbundnir mælikvarðar á hlutbundið menningarauðmagn lýsa betur menningarþátttöku stelpna en stráka. Þegar stofnanabundna víddin er skoðuð hafa rannsóknir sýnt að stelpur sinna betur heimanámi (Svandís Nína Jónsdóttir o.fl., 2002) og fá hærri einkunnir við lok grunnskóla (PISA, 2004; Sigurgrímur Skúlason, Finnbogi Gunnarsson, Rósa Einarsdóttir og Inga Úlfsdóttir, 2002) og í framhaldsskóla (Jón Torfi Jónasson og Kristjana Stella Blöndal, 2002) og fleiri stelpur útskrifast með háskólagráðu. Þó að þær hafi meira stofnanabundið auðmagn í formi einkunna og gráða virðist það ekki umbreytast með sama hagnaði í efnahagslegt auðmagn og hjá strákum (Þorgerður Einarsdóttir og Berglind Rós Magnúsdóttir, 2005). Því má segja að þeir mælikvarðar sem hafa verið notaðir til að meta mismunandi hliðar menningarauðmagns gefi misvísandi niðurstöður um félags- og námsstöðu kynjanna. Námshegðun leiðtoga í unglingabekk
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.