Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Page 55

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Page 55
50 Tímarit um menntarannsóknir, 3. árgangur 2006 Námshegðun leiðtoga í unglingabekk kringum þá. ... þeir bara eru, voru svona já, strákaleiðtogarnir ... Sumir strákanna sögðu nánast aldrei neitt óbeðnir, eins og Arnar, Markús, Breki og Alfreð. Því var það alls ekki þannig, eins og viðteknar hugmyndir um stráka gefa til kynna, að allir strákarnir hafi verið fyrirferðarmiklir eða tjáð sig mikið í tímum. Næst verður fjallað um leiðtoga tveggja stærstu vinahópanna, þau Ásu og Valdimar og hvernig þau gildi sem þau stóðu fyrir spegluðust í námshegðun vinahópsins. Leiðtogarnir Það sem leiðtogarnir eiga sameiginlegt er mjög keimlík stéttarstaða foreldra þeirra beggja. Foreldrarnir höfðu að baki háskólagöngu í vísindum eða listum og störfuðu öll á þeim sviðum, voru á svipuðum aldri og höfðu meira að segja gengið í sama framhaldsskólann. Í framhaldinu verður þó gefinn meiri gaumur að muninum sem greina mátti í lýsingum á leiðtogunum. Óhætt er að segja að flestallir kennarar hafi verið mjög ánægðir með þau bæði og í góðum tengslum við þau og foreldra þeirra. Vegna nafnleyndar er þess ekki getið frá hvaða kennurum umsögnin er komin. Gæsalappir eru utan um beinar tilvitnanir en annað er umorðað úr gögnunum, jafnvel svipuð ummæli frá mörgum viðmælendum, þannig að merkingin komist til skila (sjá 3. töflu). Ása virðist standa fyrir önnur gildi og oft andstæð við Valdimar, sem er í takt við tvíhyggjuhugmyndir um kynin. Því má segja að þau hljóti sterka stöðu í sínum hópum fyrir mjög ólíka námshegðun og breytni. Það er erfitt að ímynda sér að lýsing á Ásu gæti átt við um leiðtoga í drengjahópi. Valdimar Valdimar notaði hvert tækifæri til að sýna fram á hæfileika sína og getu, svo sem þekkingu 3. tafla. Ummæli kennaranna um leiðtogana. VALDIMAR ÁSA Ótvíræður leiðtogi hópsins, „born leader“. „Kletturinn í hópnum“ – „þær gátu allar 100% stólað á hana“ Víðlesinn – vel að sér. Fær hæstu einkunnirnar. „Hrókur alls fagnaðar“ og mjög virkur í kennslustundum – „munninn fyrir neðan nefið“. Frekar „passíf“ í kennslustundum. Alveg sama hvað öllum finnst. Feimin en sterk í hópnum, góðviljuð og ákveðin. „Algjör snillingur“ „Klár stelpa“ – „samviskusöm fram í fingurgóma.“ Hundlatur. „Gerir allt sem henni er sagt.“ Dugleg og ofsalega áreiðanleg. Bestur í körfuboltanum. Best í fótboltanum. „Einstaklega fyndinn og skemmtilegur“ - með gott skap Er í nánum tengslum við umsjónarkennarann. Hefur alltaf skoðun og á auðvelt með að koma henni á framfæri. „Á þennan hljóða og rólega hátt þá lét Áshildur í ljós hvað henni fannst. Hún hefur sterka siðferðis- og réttlætiskennd en hún talar ekki beint út.“ „Stundum þurfti að stoppa hann af til að hleypa öðrum að – af því hann er svo sterkur og svona og hefur svo sterkar skoðanir að þá verða kannski aðrir að sitja inni með það sem þeim finnst.“ „creme de la creme“ – „hún truflar aldrei, hún er ekki sú sem tekur þátt að fyrra bragði heldur er hún ein af þessum sem er alltaf tilbúin ef þú biður hana um að taka þátt í einhverju.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.