Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Síða 61
56
Tímarit um menntarannsóknir, 3. árgangur 2006
Námshegðun leiðtoga í unglingabekk
Önnur skýring gæti einfaldlega verið sú að
meiri virðing sé borin fyrir menningarauðmagni
sem drengir búa frekar yfir en stúlkur og að það
fái meiri sess í námskrám, en af áðurnefndum
rannsóknum á menningarauðmagni er ljóst að
menningarneysla er talsvert kynjuð. Eins benti
Bourdieu á að sams konar hæfni kynjanna
getur verið göfug eða virðingarverð þegar
karlar eiga í hlut en aftur á móti óveruleg
eða lítt eftirtektarverð þegar konur eiga í
hlut (Bourdieu, 2001:60).8 Mikilvægt er
að kanna frekar hvað einkennir viðteknar
kynjahugmyndir í skólum hér á landi og hvernig
þær hafa áhrif á verðmætamat, námshegðun og
námsárangur.
Í áframhaldandi rannsóknum á menningar-
auðmagni er mikilvægt að skoða vel í upphafi
hvaða þekking og hæfni er talin virðingarverð
í samfélaginu og móta svo mælikvarða út frá
þeim athugunum til að geta skoðað tengsl
þess við náms- og félagsstöðu. Mikilvægt er
að skoða frekar hvort nemendur telji að til séu
eins konar elítuhópar eða ráðandi hópar innan
bekkja eða skóla og hvað þeir telja að einkenni
verðmætamat þeirra hópa sem eru leiðandi
eða einstaklinga sem veljast sem leiðtogar.
Tilgáta mín, sem ég byggi aðallega á reynslu
af því að hafa kennt í sveitaskóla, skóla í
sjávarþorpi og svo skólum í borginni, er að
það sé misjafnt eftir kyni, menningarumhverfi
skólans og samsetningu nemendahópsins.
Hugsanlegt er að niðurstöður gætu varpað
skýrara ljósi á mismunandi jafnréttisstöðu
ólíkra hópa í skólanum, á árangursmuninn
milli kynja og þéttbýlis og dreifbýlis á Íslandi,
og hvernig kynjamenning og mismunandi
menningarumhverfi skóla kallar á ólík viðmið
um hvað sé eftirsóknarvert og virðingarvert.
Abstract
Bourdieu’s conceptual framework of
capital has had a sustained impact on research
on educational systems. Bourdieu explained
that school success and learning behaviour
are related to the amount and type of cultural
capital inherited from the family milieu. In this
paper I discuss the different interpretations and
applications of his conceptual framework by
scholars in the field. Some scholars, referring
to the essay “Forms of Cultural Capital“ (his
most sustained elucidation of the meaning
of “cultural capital“), have argued that the
premises of dominant interpretations have been
too narrow. They recommend operating with
a wider perspective, keeping in mind that the
specific indicators of cultural capital in one
context may not be relevant in another context.
Both the dominant and the wider interpretation
are reflected in data from a qualitative study in
which I focused on gender power relations and
leadership in the Icelandic teenage classroom
setting. The results indicated that friendship
between students was gendered and the groups/
cliques excluded individuals or other groups
by referring to their educational behaviour and
cultural distinctions. There was one dominant
group for each gender. My analysis focuses
on the group leaders’ learning behaviour and
attitudes towards the dominant school values
and on how educational success and credentials
such as grades are relevant to their social
status in the classroom. The importance of
studying the learning behaviour of such leaders
is undeniable because a leader’s learning
behaviour and interaction tells a great deal
about her/his group’s educational and cultural
values. Because of increasing emphasis on
accountability and school assessment by
authorities who evaluate the educational success
of students, it is important to try to understand
students’ values and how they are aligned with
various interpretations of cultural capital.
Heimildir
Adler, P. A. og Adler, P. (1998). Peer power:
Preadolescent culture and identity. New
Brunswick: Rutgers University Press.
8 Sem dæmi nefndi hann tískuhönnuðinn og saumakonuna eða kokkinn og matráðinn.