Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Síða 66

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Síða 66
61 Tímarit um menntarannsóknir, 3. árgangur 2006 Victoria Carrington (2004) vekur athygli á þessum orðum ungs ritstjóra tímaritsins Game Zone og bendir á að staðhæfing sem þessi eigi ekki aðeins við í Japan heldur sé um alheimsfyrirbæri að ræða. Tölvuvæðingin og samskiptatæknin frá frumbernsku undirbúi ungt fólk fyrir læsi og þekkingu sem er allt öðruvísi en sú þjálfun sem foreldrar þess og kennarar hafa fengið. Carrington segir skólann seinan að bregðast við þessu og bendir m.a. á að tölvuleikir, sem áður voru fremur einhæfir og oft andfélagslegir, veiti nú textalega og menningarlega þjálfun í samskiptum sem geti skipt sköpum fyrir framtíðina. Læsi sé að breytast, en það sé flókið að átta sig á hvaða merkingu það hefur. Þessi sýn er umhugsunarverð þegar litið er á rannsóknarniðurstöður sem benda til að bóklestur ungs fólks fari minnkandi og að nýju miðlarnir eða samskiptatæknin allt frá sjónvarpi, farsímum, tölvuleikjum, mynd- böndum, og mynddiskum komi að einhverju leyti í staðinn fyrir hefðbundnari bók–, blaða– og tímaritalestur ungs fólks (Guðný Guðbjörnsdóttir, 2005a, 2005b; Guðný Guðbjörnsdóttir og Sergio Morra, 1997, 1998, 2004a, 2004b; Hopper, 2005; Howard, 2006; Rowan, Knobel, Bigum og Lankshear, 2002; Þorbjörn Broddason, 1992, 2005). Einnig er vel þekkt að stúlkur lesi meira en drengir og að lestrarefni sé mismunandi eftir kynjum. Þó að bækurnar sem eru vinsælastar meðal unglinga breytist í gegnum árin, virðist lestrarmynstrið, þ.e. hvers konar bækur eru lesnar, breytast minna (Clarke og Foster, 2005; Guðný Guðbjörnsdóttir og Sergio Morra, 1997; Hall og Coles, 1999; Hopper, 2005). Það er víða áhyggjuefni að æ stærri hópar eiga í erfiðleikum með lestur eða læsi, einkum drengir (Au og Raphael, 2000; Rowan og félagar, 2002) og sumir ganga svo langt að segja lestur kvenlæga fremur en karllæga iðju (Wragg, 1997; Young, 2001). Í PISA- athuguninni á læsi árið 2000 sem náði til 15 ára barna í 43 löndum kom fram marktækur kynjamunur í lestrarfærni í öllum þátttökulöndum nema Lichtenstein. „Það virðist sem 15 ára drengir lesi almennt mjög lítið umfram það sem ætlast er til af þeim ... og það sem meira er, helmingi fleiri drengir en stúlkur sjá lestur sem tímasóun“ (OECD/UNESCO, 2003, bls. 155). Árið 2000 fékk Ísland 507 stig og lenti í 10.–12. sæti og var fyrir ofan meðallag OECD- ríkjanna. Finnar voru efstir með 546 stig. Árið 2003 fékk Ísland hins vegar 495 stig í læsi og lenti fyrir neðan meðallag OECD ríkja, sem var 500 stig. Finnar og Japanir voru efstir með 548 stig, en hinar Norðurlandaþjóðirnar lentu bæði fyrir ofan okkur og neðan í stigafjölda, þá sem fyrr (OECD, 2004). Betra læsi stúlkna hefur verið nefnt sem líkleg skýring á betra gengi stúlkna en drengja í skóla almennt og nýlega hefur það verið nefnt sem hugsanleg skýring á betra gengi íslenskra stúlkna en drengja í stærðfræði í PISA- athuguninni og á samræmdum prófum á Íslandi (Júlíus K. Björnsson, 2006). Yfirvöld menntamála í öðrum löndum hafa víða brugðist við með sérstökum áætlunum eða styrkjum. Menntamálayfirvöld í Bandaríkjunum veita t.d. sérstaka læsisstyrki til fræðsluumdæma, 100 milljónir dollara til átta fræðsluumdæma 2006– 2007, í þeim tilgangi að styrkja læsi unglinga (Alliance for Excellent Education, 2006). En hvað er átt við með hugtakinu læsi? Í kjölfar tækniþróunar í tölvumálum og sam- skiptum hefur þetta hugtak þróast hratt og fræðimenn eiga fullt í fangi með að höndla það í takt við breyttar skilgreiningar. Sjónarmið Freire (Freire og Macedo, 1987), að læsi feli í sér allt frá því að lesa orð yfir í að umskrifa heiminn eða umbreyta honum, sýnir bæði hve fyrirbærið er umfangsmikið og að um persónulegt ferli er að ræða. Skilgreiningar skipta t.d. máli í skólakerfinu og þegar ákveðið er hvernig mati á læsi skuli vera háttað. Um 1970 var t.d. lögð áhersla á færni (e. skills) í að skrifa, tala og lesa í Michigan- fylki í Bandaríkjunum en um 1980 kom fram vaxandi áhersla á lesskilning (e. comprehension), með þeim afleiðingum að matsáherslur skólans gjörbreyttust (Au og Raphel, 2000). Ýmsir gera ráð fyrir því að ferlið frá því að lesa orð yfir í að umskrifa heiminn, geri nú þær kröfur að tekið sé tillit til mikilvægis margmiðlunar, mis- Er „menningarlæsi“ ungs fólks að breytast?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Tímarit um menntarannsóknir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.