Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Page 82

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Page 82
77 Tímarit um menntarannsóknir, 3. árgangur 2006 þá til meiri lestrar sé hönnun vefsíðna og blaða, að hitta þekkta höfunda og lestrarleikir (Clarke og Foster, 2005). Það er alvarlegt mál ef læsi er að verða kvenkennd iðja og því þarf að hlusta á raddir drengja, hvers vegna það þykir ekki karlmannlegt að lesa eða læra heima á vissum aldri (Young, 2001; Berglind Rós Magnúsdóttir, 2003). Millard (1997, 2002) mælir með lestrarkennslu með frjálsu vali á textum á mismunandi formi, en síðan komi til sameiginlegt mat nemenda og kennara á textum með það tvöfalda markmið að nemar verði gagnrýnir á texta og átti sig á gildi þeirra hvort sem er til fræðslu eða skemmtunar. Þó að sumir vilji halda í þann skilning að menningarlæsi felist í lestri bestu textanna sem til eru í tiltekinni menningu (Hirch, 1987), benda aðrir á að stöðugt bætist við það sem þykir æskileg menningarleg kunnátta og að mælikvarðar á hvað sé gott breytist einnig (Totosy De Zepetnek, 1994). Aðrir telja mikilvægara að allir fái að læra það í skóla sem er merkingarbært fyrir við- komandi sem getur farið eftir einstaklingum, kynferði eða bakgrunni (Gee, 1987; McCarthy og fl., 2003; Young, 2001). Hvort sem hugtakið menningarlæsi er notað eða ekki, er þörf á víðari skilgreiningu sem er í takt við breytta miðla og fjölmenningarlegar aðstæður samtímans (Rowan og félagar, 2002). Að lokum skal ítrekað að athugunin á nemum í 10. bekk 2005 náði nú eingöngu til Reykjavíkur og því væri æskilegt að endurtaka hana með stærra úrtaki af öllu landinu og meiri áherslu á tölvulæsi, SMS, blogg, mynd- eða margmiðlun auk hefðbundins menn- ingarlæsis. Brýnt er að finna betur út á hvern hátt læsi á nýju miðlana nýtist til framtíðar og hvort eða að hvaða leyti það getur komið í staðinn fyrir áherslur á hefðbundið bóknám, ekki síst í ljósi þess að breyting á læsi virðist hafa áhrif á sjálfsmynd, athafnir, námsval og heimssýn einstaklinga (Carrington, 2004). Þetta er mikilvægt bæði fyrir nemendur, skólann og foreldra, því á meðan það er ekki ljóst má búast við að skólinn haldi sig við hefðbundna texta og bóknám. Nýframkomnar tillögur um breyttan framhaldsskóla (Skýrsla Starfsnámsnefndar, 2006) þar sem vígi bóknámsins virðist riðlast með minni aðgreiningu á bók- og verknámi er ef til vill vísbending um að nýju miðlarnir og breytt læsi séu að ryðja brott hefðbundninni skiptingu í bók– og verknám. Það er ögrandi rannsóknarviðfangsefni í náinni framtíð. Hugtakið menningarlæsi þarf að ná til læsis á alla viðeigandi miðla og til þekkingar sem stuðlar að virkni í samfélaginu, bæði heima fyrir og alþjóðlega. Skilgreining á menningarlæsi og því besta í menningararfi okkar er eðlilega umdeild og líklegt að nokkur átök verði um það hvað eigi að draga fram í skólakerfi okkar til að stuðla að sameiginlegri sjálfsmynd á nýrri öld. Það markmið þarf einnig að hafa í huga þegar lesefni er ákveðið og læsi ungs fólks er metið. Hvort tveggja skiptir máli, læsisferlið og hvað lærist. Í ljósi byltingarinnar í samskiptamiðlun og áhrifa fjölmenningar eru að eiga sér stað umtalsverðar breytingar á því sem Bourdieu kallar menningarsvið og menningarauð og talað er um að rjúfa sambandið á milli ráðandi afla og textavals, hleypa röddum ungs fólks og minnihlutahópa meira að (Hulan og Warley, 1999). Þetta er internetið og svokallaðar bloggsíður einmitt að gera. Þetta kallar ef til vill á mun sveigjanlegri námskrár en þær hefðbundnu greinabundnu námskrár sem hér hafa tíðkast (Guðný Guðbjörnsdóttir 2003a og 2003b). Það er von höfundar að þessi rannsókn eigi eftir að nýtast til samanburðar í framtíðinni og við ákvarðanir menntamálayfirvalda um skipulag og inntak menntunar á Íslandi, svo að sem flestir verði færir til að meðtaka og endurmóta menningararf landsmanna og að ná tökum á „menningarlæsi“ til framtíðar. Abstract This research concerns reading and leisure habits of 10th graders in Reykjavik in 2005. The goal was to look at changes in the “cultural literacy“ of young people by comparing the results with available research. A questionnaire was administered to all 10th graders (15-16 year olds) in two schools in Reykjavik, 107 Er „menningarlæsi“ ungs fólks að breytast?
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.