Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Page 99

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Page 99
94 Tímarit um menntarannsóknir, 3. árgangur 2006 sagt mér að þeir hafi upplifað vinnustaðinn sem alvöru lærdómssamfélag. FRAMTÍÐARHORFUR Hvað hefur þú á prjónunum núna? Þegar ákveðið var hjá borginni að aðgreina aftur yfirstjórn leik- og grunnskóla gerði ég mér grein fyrir því að ég kærði mig ekki um að stýra breytingum til fyrra horfs, en ég stýrði sameiningu yfirstjórnar leik- og grunnskóla fyrir einu og hálfu ári. Það væri eðlilegast að aðrir gerðu það. Þá kom fljótt upp í hugann að mig langaði aftur að fara að stunda rannsóknir og fljótlega fann ég að áhuginn beindist að því að skoða áfram skil skólastiga sem ég hef lengi haft mikinn áhuga á, eins og fram hefur komið. Mig langar að halda áfram með þetta svið, og nú langar mig til að bæta við skilunum milli leikskóla og grunnskóla. Ég fékk mikinn áhuga á leikskólanum þegar ég var yfirmaður hans í eitt og hálft ár, þar fékk ég nýtt tækifæri. Ég hafði áður kennt og verið stjórnandi á öllum skólastigum nema leikskóla. Nú bætti ég leikskólanum við. Sem yfirmaður leikskólanna heimsótti ég marga þeirra. Það kom mér á óvart hvað mikið er verið að kenna í leikskólunum – og alltaf í gegnum leikinn, sem er frábær aðferð. Þróunin hefur verið svo hröð. Leikskóladvöl er nú í boði fyrir öll börn frá 18 mánaða aldri, allan daginn. Fyrir um 10 árum síðan áttu flest börn aðeins kost á leikskóladvöl hálfan daginn. Þegar börnin koma nú í grunnskólann hafa þau verið fjögur ár í leikskóla, allan daginn. Þetta er gerbreytt staða. Ég veit ekki hvernig grunnskólinn hefur mætt þessum breytingum. Mig langar að skoða nánar hvað börn eru að læra í leikskóla og hvernig það nýtist þeim í grunnskólanum. Það er markviss kennsla og uppeldi sem fer fram í leikskólanum og nú læra börn þar efni sem ég kenndi sjö ára nemendum mínum í grunnskóla, þegar ég var að byrja að kenna fyrir mörgum árum. Ég hef á starfsferli mínum fylgst með því hvernig inntak náms hefur færst frá framhaldsskóla niður í grunnskóla og frá grunnskóla niður í leikskóla. Tungumálanámið er gott dæmi. Ég byrjaði að læra ensku 14 ára, börnin mín 12 ára, en barnabarnið 9 ára. Það á sér stað mikið námsrek niður á við. Algebra er nú kennd í grunnskóla sem ég lærði fyrst í MR og áður var ekki eins mikil bókmenntakennsla í grunnskólanum og núna. Ég hef mikinn áhuga á að rannsaka þessa þróun. Þegar ég sagði upp sviðsstjórastarfinu kynnti ég borgarstjóra þessar hugmyndir mínar og tjáði honum jafnframt að ég hefði áhuga á að vinna rannsókn fyrir borgina á námi við skil leikskóla og grunnskóla annars vegar og skil grunnskóla og framhaldsskóla hins vegar. Hann tók því afar vel. Ég hef líka áhuga á að sinna ráðgjöf á sviði menntamála, svo sem við einstaka skóla eða sveitarfélög. Formaður menntaráðs Reykjavíkur óskaði eftir því að ég yrði ráðgjafi ráðsins. Svo er ég nú að tengjast verkefnum í Háskóla Íslands og er til í meira af því tagi. Heldur þú að þetta starf undanfarin 10 ár muni móta þig mikið sem rannsakanda? Alveg örugglega. Bakgrunnur minn úr háskólanum, kennsla kennaranema og rannsóknir, nýttist mér mjög vel í starfi fræðslustjóra til viðbótar við störf mín áður sem kennari og skólastjóri bæði á grunn- og framhaldsskólastigi og ráðgjafi ráðherra í menntamálaráðuneytinu. Ég veit að þessi 10 undanfarin ár munu nýtast mér gríðarlega vel í rannsóknum ef ég kemst á skrið í þeim. RÁÐ TIL EFTIRMANNA Hefðir þú einhver góð ráð handa eftirmanni þínum ef eftir þeim væri leitað? Mér hefur fundist skipta miklu máli að vera í góðu sambandi við skólastjórana og hvetja þá og styðja sem leiðtoga sinna skóla. Þeir eru í mjög erfiðu og krefjandi starfi, efstir á toppnum. Það getur verið kalt á toppnum, kaldara en áður var. Skólastjórar grunnskólanna í Reykjavík eru gríðarlega sterkur hópur og eru að vinna frábært starf með sínu góða fólki. Ég reyndi að vinna að stefnumótun í Viðtal við Gerði G. Óskarsdóttur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.