Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2010, Blaðsíða 111
111
rannsóknir í menntavísindum hafa dafnað á
íslandi á síðustu áratugum. efling háskóla og
rannsóknarstofnana á sviðinu og aukin fag -
mennska hefur haldist í hendur við kröfur
íslensks samfélags um haldbærar rannsóknir.
en þó að margir sprotar hafi komið í ljós er
varla hægt að segja að íslensk hefð í þessum
efnum hafi mótast. Jafnvel má segja að ein -
yrkjafjölbreytni einkenni íslenskar rannsókn ir á
uppeldi, menntun og þroska. Það er ekki vondur
heimur þar sem allir rækta garðinn sinn; sumir
segðu að allt sé í allrabesta lagi. en ókostir
fylgja ræktunarsamfélagi sem er bæði fjölskrúð -
ugt og fámennt. Hver og einn einyrki rannsakar
kvæmi sín og afbrigði og þegar vel gengur
stendur hann í bréfaskriftum við útlönd. en
aðhald sem fæst af sameigin legum verkefnum
og markmiðum verður útundan ef innlenda sam -
starfið snýst meira um samræm ingu punktakerfa
en um efnisatriði. Hvaða stefnu eiga íslendingar
að fylgja í skóla- og uppeldismálum? Hvert er
hlutverk rannsókna í að svara því? Þetta er
kannski skrýtin byrjun á stuttri umsögn um bók.
Hún er svona af því að ég held að bókin The
self and its emotions eftir kristján kristjánsson
prófessor sé mjög athyglisverð fyrir íslenskt
fræðasamfélag. Hún er ekki bara óvenjugóð
fræðibók, heldur líka mögulegur vísir að
einbeittri og gagnlegri samræðu um uppeldis-
og menntamál.
ef ritdómari verður að koma að verkefni
sínu úr óvilhallri fjarlægð er sá sem hér hamrar
á lykla sennilega vanhæfur til að dæma um
þessa bók. Ég las nefnilega hluta hennar í
handriti og hef líka átt dálítið yfirdeildarmúra -
samstarf við höfundinn um námskeið um efni
hennar. en á móti því vanhæfi kemur að ég hef
haft drjúgan tíma til að kynna mér bókina og
hugsa um efni hennar. Og kannski er það ágætt.
Það tekur tíma að lesa þessa bók.
eins og nafnið gefur til kynna er The self
and its emotions umfjöllun um sjálf og tengsl
þess við tilfinningalíf. meginatriði þeirrar
kenningar er að sjálf sé hvorki félagsleg né
fræði leg hugsmíð heldur raunverulegt fyrirbæri.
í því ljósi á að umgangast það í dagsins önn og
rannsaka það. sjálfið byggist á tilfinningum eða
geðshræringum fremur en vitsmunum og drif -
kraft ur tilfinninganna beinist að margbrotnum
siðferðisviðmiðum, ekki bara afstæðri sældar -
hyggju, bældum kvíðahnútum eða einföldum
formúlum um jákvætt og neikvætt. kristján
heldur þannig fram kenningu sem má heita
nýstárleg í nútímafélags- og uppeldisvísindum.
Það væri vel hægt að halda því fram að
grund vallarefni kenningar hans – sjálf, tilfinning
og siðferði – hljóti að vera meginatriði í kenn -
ing um um uppeldi og menntun. Og það mætti
skrifa allþykka ritgerð, að minnsta kosti meist -
ara ritgerð, um það hve þessi umræðuefni eiga
sér erfiða sögu í rannsóknum og hagnýtingu.
enginn neitar mikilvægi tilfinningalífs í mótun
hegðunar. en samt er eins og rannsóknir á því
snúist enn um að finna hagstæða byrjunarreiti.
rannsóknir á sjálfi hafa blómstrað á síðustu
áratugum – en enn flaksast umræðan öfganna á
milli, þeirra sem telja sjálf og sjálfsskýringar
upphaf og endi allrar uppeldisstefnu og hinna
sem vilja sem minnst af því vita. rannsóknir á
siðferðisþroska eru að sama skapi miklar að
vöxtum og niðurstöðum en mega enn kljást við
tengslin við veruleikann sjálfan – einkum
Umsögn um bókina The self and its emotions
eftir Kristján Kristjánsson
sigurður J. grétarsson
Háskóla íslands, sálfræðideild
Tímarit um menntarannsóknir, 7. árgangur 2010
Tímarit um menntarannsóknir_Layout 1 1/17/11 5:18 PM Page 111