Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2012, Síða 65
65
áráttuhegðun, BDSM27, en einnig fólk í vændi og fólk sem stundar kynlíf
með sér mun yngri eða eldri bólfélögum.28
Myndinni er ætlað að sýna mörkin á milli hins besta og versta í kyn-
lífsiðkun. Besta kynlífið fer fram í hjónabandi og hið versta er stundað
af þeim sem hvorki upplifa sig sem gagnkynhneigða né samkynhneigða
heldur eitthvað annað.29 Eini aðgöngumiðinn að hjónabandinu á þeim tíma
sem Rubin ritar grein sína (1984) er gagnkynhneigð. Gangist maður undir
þá kynhneigð öðlast maður tilkall til ótal eftirsóknarverðra gæða sem sam-
félagið útdeilir, ítrekar hún, svo sem þess að vera stimplaður eðlilegur,
náttúrulegur, heilbrigður og stundum jafnvel heilagur. Sé maður hins vegar
ekki gagnkynhneigður vofir syndin yfir. En ekki aðeins syndin heldur allir
þeir neikvæðu, samfélagslegu stimplar aðrir sem upp voru taldir hér að
framan. Hér höfum við því birtingarmynd gagnkynhneigðar hyggj unnar
í hnotskurn. Kjarni hennar er siðapredikun, að mati Rubin, og byggist á
sama viðmiði og finna má í hugsun Ágústínusar um hjónabandið og kyn-
lífið.30 Gagnkynhneigðarhyggjan byggist vissulega, að hluta til, á úreltri
líffræðilegri þekkingu eins og Gudorf benti á, en ekki síður, vil ég bæta
við, skorti á upplýsingum og þekkingu á mannlegri reynslu. Kristnir forn-
aldar- og miðaldamenn þekktu til fyrirbæra eins og sveinaásta Grikkjanna
og kynlífsathæfis tveggja karlmanna sem Gamla testamentið fordæmdi.31
Tilvísun til þekkingar þeirra á þessum hlutum hefur þó ekki mikið vægi
þegar kemur að skilningi á veruleika þess stóra hóps fólks í heiminum nú
um stundir sem oft er kallað hinsegin fólk. Það er því réttmæt krafa að
kirkjur nútímans kynni sér veruleika hinsegin fólks og leitist við að endur-
27 BDSM er skammstöfun og notuð sem samheiti fyrir alla þá möguleika sem falist
geta í sadómasókisma, munalosta, leðurlífsstíl og valda- og skynjunarbreytingar-
leikjum.
28 Gayle Rubin, „Thinking Sex“, bls. 282–283.
29 Um þennan hóp fólks er oft talað sem þriðja kynið, þ.e. fólk sem tjáir hvorki kyn-
vitund karls né konu.
30 Hér má ítreka þá merkilegu þversögn að leið Ágústínusar til heilagleika lá í gegnum
„saurlifnað“.
31 Þessi fyrirbæri eru um margt ólík en eiga það þó sameiginlegt að erfitt er að fella
þau á einfaldan hátt undir hugtakið samkynhneigð eins og það hefur verið skilið í
samtímanum. Þannig skrifar Eyjólfur Kjalar Emilsson í inngangi að Samdrykkjunni:
„Óvarlegt væri að færa allt sem á við um samkynhneigðar ástir á okkar dögum yfir
á sveinaást Grikkjanna.“ Sjá Platon, Samdrykkjan og Plótínos. Um fegurðina. I.6.,
þýðing Eyjólfur Kjalar Emilsson, Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag, 1999,
bls.15. Hvað varðar fordæmingu á kynlífi tveggja karlmanna í Gamla testamentinu
má vísa til Þriðju Mósebókar, 19. kafla.
KYNHNEIGð Í KRÍSU