Skírnir - 01.01.1980, Page 100
98
PÁLL BALDVIN BALDVINSSON
SKÍRNIR
í Þjóðviljann að jafnaði og héldu á þeim vettvangi uppi and-
stöðu við Bræðinginn. Leikurinn var pólitískt vopn í þeirri
baráttu.
4
Þegar revíusýningar hófust að nýju í Reykjavík höfðu gagn-
gerar breytingar orðið í stjórnmálum þjóðarinnar. Stéttastjórn-
mál hófu innreið sína. Forsendur ádeilu á stjórnmálalíf höfðu
því breyst verulega. Að baki flokkunum stóðu andstæðir hags-
munir stéttanna. Þá var starfsemi ríkisstofnana í stöðugri út-
þenslu, einkum með tilkomu Landsverslunar, sem hafði allan
inn- og útflutning landsmanna á sínum snærum.
Fyrstu revíu á þriðja áratug aldarinnar samdi Páll Skúlason
fyrir Tennisfélag Reykjavíkur. Hún hét Boltinn með lausa nafl-
ann. Henni var vel tekið og réðst Páll þá í stofnun fyrirtækis,
Reykjavíkurannáls, sem setti upp sex revíur áður en áratugurinn
var allur. Þær voru allar sýndar í Iðnó, oftast frumsýndar í lok
janúar og sýndar fram á vor. Páll bar ekki einn hitann og þung-
ann af viðgangi revíunnar. Með honum starfaði hverju sinni
hópur höfunda og leikara. Meðal samstarfsmanna hans við
samningu voru Morten Ottesen, Gústaf Jónasson, Magnús Joch-
umsson, Reinholt Richter, Eggert Laxdal og Magnús Asgeirsson.
Aldrei var leikstjóri að revíum þessum. Leikendur og höfundur
sköpuðu sýningunum stíl í sameiningu. Leikhópurinn breyttist
lítið frá ári til árs. Alltaf var sama fólkið í helstu hlutverkum:
Friðfinnur Guðjónsson, Gunnþórunn Halldórsdóttir, Reinholt
Richter, Rósa ívars, Tryggvi Magnússon og Haraldur Á. Sig-
urðsson.
Revíurnar voru ekki eina tillegg Páls til umræðu um samfé-
lagsmál; hann stofnaði Spegilinn 1926 og ritstýrði honum lengst
af. Spegillinn og revíurnar gerðu sér mat úr skoplegum atvikum
í opinberu lífi. „Hér er hin argasta uppskafningsöld, þar sem
fjöldinn þykist vita allt, þar sem flestir þykjast geta orðið þing-
menn og þar sem allir þingmenn þykjast geta orðið ráðherrar,"
segir í fyrsta hefti Spegilsins. Þar vitna ritstjórar í fleyg orð
Gests Pálssonar um háðið, sem meðal á það sem miður fer í
samfélaginu. Sama hlutverki átti revían að gegna.