Skírnir - 01.01.1980, Blaðsíða 101
SKÍRNIR REVÍUR í REYKJAVIK 99
Samanburður á efnisþáttum og fléttugerð í revíum Páls leiðir
í ljós hversu mikil líkindi eru með þeim öllum. Kjarni þeirra
er þessi: Eldri hjón í Reykjavík eru aðalpersónur. Hann er at-
hafnamaður, íhaldssamur og vill sem minnst opinber afskipti af
verslun og viðskiptum. Hún er bundin við heimili og góðgerða-
starfsemi. Barn þeirra, sonur eða dóttir, er að hefja hjónaband.
í fjórum fyrstu revíunum er flétta leiksins byggð á hjónabands-
stofnuninni. í öllum tilfellum er ungi maðurinn, sem vill kom-
ast í tengdir við þessa borgara, af lægri stigum og stuðningsmað-
ur flokka með félagslegar liugsjónir, Alþýðuflokks eða Fram-
sóknarflokks. Sama fléttugerð er í Lausum skrúfum, en þar er
eina dæmi þess að tengdirnar mistakist. I hinum fallast póli-
tískir andstæðingar í faðma í lok verksins. Sameiginlegir hags-
munir þeirra eru sterkari en andstæðar skoðanir. Undirfléttur
snúast oftast um einhverskonar ástarsambönd, framhjáhöld,
hjónaband vinafólks. Framgangur fléttunnar er oft óljós; engu
líkara en höfundur gleymi fléttunni í gerð leiksins. Því verður
lausnin hroðvirknisleg. Bæði í Eldvigslunni og Haustrigning-
um leysist úr fléttunni í næstsíðasta þætti, en lokaþáttur stendur
svo til sjálfstætt, efnið skop um nafn leiksins. Tituprjónar og
Lausar skrúfur tengjast að verulegu leyti Alþingishátíðinni 1930.
Tituprjónar hefur engan samfelldan þráð. Hver þáttur er sjálf-
stætt sögulegt gaman. Þeir gerast í Reykholti, Reykjavík og á
Þingvöllum og eru skop um landnámsmenn.
Spdnskar ncetur var fyrsta opinbera revía Páls og félaga. Síðar
var til þess vitnað að hún hefði lagt grunn að síðari revíum
þeirra, bæði formlega og að vinsældum þeirra. Spánskar ncetur
var „ársreikningur í fjórum liðum án fylgiskjala“. í fyrsta þætti
eru persónur leiksins kynntar: Bíleam Breiðsver bílakóngur
Reykjavíkur og kona hans, dóttir þeirra Angela og Ketill Flat-
nefss vonbiðill hennar, Kvensa Macademica ráðskona á heimili
Breiðsvers, Jón Ó. og Ó. Jón, tveir ungir menn á uppleið.
Leikurinn hefst á því að Bíleam er að koma smygluðu áfengi
upp á hafnarbakkann. Bandið í kútnum slitnar og heyrist brot-
hljóð upp á leiksviðið. Breiðsver lítur á spottann með fyr-
irlitningu og vitnar í auglýsingu Gefjunar — Iðunnar: „Kaup-
irðu góðan hlut, þá mundu hvar þú fékkst hann.“ Félagi Breið-