Skírnir - 01.01.1980, Blaðsíða 116
114 PÁLL BALDVIN BALDVINSSON SKÍRNIR
Allt í lagi, lagsi minn,
lærðu að binda um túlann þinn.
kvartaðu aldrei um kulda í skrokk,
það er krítikk á ráðandi flokk.
Allt í lagi, lagsi minn,
löngum hér vernda haginn þinn,
strangir, heiðvirðir stjórnmálamenn,
sem aðeins selja sig einum í senn,
segir þar meðal annars. Og í lokasamræðu leiksins, þegar Esekíel
hefur fengið sýknu, rannsókn á bókhaldi Híbó er lokið með fjöl-
skyldutengslum og inngöngu í réttan flokk, þá óskar sá seki þess
„að jafn góð lausn fengist á öllum vandamálum þessarar þjóðar.
Og við skulum vona, að það verði ekki neinir kvistir í þeim
máttarstólpum, sem halda lýðveldinu uppi.“ Jón Span bætir
við: „Það verða engir kvistir — kanske nokkrir smákvistling-
ar.“ Siðaboðun Emils og félaga er því kæruleysi í annars gjör-
spilltu samfélagi, því allt er í lagi, þrátt fyrir allt.
Allt i lagi lagsi var síðasta verk Emils. Hann lést sumarið 1944.
Haraldur Á. og Indriði fengu þá Tómas Guðmundsson í lið með
sér og sömdu þeir Upplyftingu saman 1946. Haraldur segir að
það hafi verið þeim nauðsyn að hafa virt skáld með í fyrirtæk-
inu. Emil hafi notið virðingar og það hafi firrt þá vandræðum
og gagnrýni. Tómas hafi haft sama hlutverki að gegna. Upplyft-
ing ber þess merki sem á undan var gengið. Efni leiksins er farsa-
kennd saga af fjórum hjónaböndum, svikamyllu braskara sem
ætla að komast hjá gjaldþroti með auðugu kvonfangi. Eitt hjóna-
bandið leiðir af öðru. Fléttan er rofin í sífellu með söngvum,
sérstökum gamanþáttum og skopstælingum á leikritum sem voru
leikin um þetta leyti. Piltur og stúlka, Skálholt og Uppstigning
eru skopstæld. Rofin í þræðinum gera það að verkum, að revían
er farin að nálgast kabarettformið ískyggilega mikið. Svipaða
sögu er að segja af Vertu bara kdtur eftir sömu höfunda sem
var leikin 1947. Þá hafði starfsemi Fjalakattarins flutt í Sjálf-
stæðishúsið gamla. Þar var aðstaða öll mun verri til leiksýninga.
Fór svo að fyrirtækið skipti um nafn, tók upp heitið Bláa stjarn-
an og einbeitti sér að kabarettsýningum. Kabarettar Bláu stjörn-
unnar urðu ellefu alls. Revíuheitinu var haldið á mörgum