Skírnir - 01.01.1980, Blaðsíða 167
SKÍRNIR
LEIKRIT OG LEIKHÚS
165
þess freistað að samsama orð og æði á sviðinu, talað orð og söng,
leik og tónlist, til miklu meiri hlítar en áður hafði tíðkast. í
sömu átt hefur síðan verið haldið í Þjóðleikhúsinu með sýn-
ingum eins og Inúk og Grænjöxlum og í Alþýðuleikhúsinu á
Akureyri og Reykjavík, einkum með leikritum Böðvars Guð-
mundssonar. Á seinni árum starfa að vísu rithöfundar með
leikhópnum, en textinn er frá öndverðu saminn til tiltekinna
nota, tiltekinnar sýningar og í miklu nánari samvinnu við leik-
endurna en venja hefur verið í leikhúsum.
Frísir kalla, Poppleikurinn Óli voru á sínum tíma mjög svo
áhugaverðar sýningar, einkum vegna nýstárlegra leikrænna
vinnubragða og stefnumarka leiks. Frísir kalla var þjóðlegs
efnis, samið upp úr fornu skemmtikvæði, Skipafregn eftir
Gunnlaug Snorrason, við tónlist eftir Jón Ásgeirsson; og það
sem þar tókst best voru frjálsleg tilbrigði, einkum í kór- og
dansatriðum, við hið forna og þjóðlega efni. í Poppleiknum
Óla var á hinn bóginn reynt að fjalla beint um samtíðina; sagan
í leiknum gekk út á feril Óla frá fæðingu til giftingar og rakti
sig þannig gegnum samfélagið frá bernsku til fullorðinsaldurs;
hún var sögð í mörgum laustengdum leikatriðum, söng og
dansi, hópatriðum og einstaklingsleik, við rafmagnaða, sefjandi
og ærandi poppmúsík. Það nýstárlega við leikinn var tilraunin
að samsama með þessum hætti yrkisefni úr daglegu lífi og liug-
myndaheimi æskufólks við þess eigin tónlist í eina órofa fram-
vindu á sviðinu; og tónlistin hygg ég að hafi verið sterkasti og
frumlegasti þátturinn í Poppleiknum Óla. Á við hana virtust
einstök frásagnarefni leiksins og leikrænar úrlausnir þeirra oft
ósköp lítil í sér, mörg leikatriði marklítil þótt önnur tækjust vel.
Þar var í rauninni farið með frumefni frjálslegrar revíu, og
gildi sýningarinnar valt á dug og getu leikenda að fá þennan
sundurleita efnivið til að loða saman sín í milli og við tónlist-
ina, gæða allt saman lífi og þokka á sviðinu; bestu atriðin þau
sem allt starfaði saman í senn, leikur, söngur og tónlist, fjöl-
skrúðug sviðs- og ljósatækni. En leikinn í heild skorti tilfinnan-
lega skýra stefnumótun, efnisfestu hins leikræna atferlis, frum-
lega leikforustu í einu orði sagt. Án leikrits engin leiksýningl
Hver sýning þarf á texta-ígildi að halda ef ekki sömdum texta, ef