Skírnir - 01.01.1980, Síða 110
108
PÁLL BALDVIN BALDVINSSON
SKÍRNIR
og býr hjá Háa Þór, vini sínum. Hái Þór rekur fornsölu og
flytur inn „loftárásaskran" frá Bretlandi. Kvíðbogi kemst von
bráðar í nánd við skýrsluna og nær henni að lokum eftir mikinn
eltingaleik. Til að auka á spennuna og erfiðleika Kvíðboga eru
tvær ungar konur sem vilja eiga hann.
Einstaka atriði leiksins er þögult. Emil hefur þegar í handriti
gert sér nákvæmar hugmyndir um útfærslu á svo viðkvæmum
þáttum og treystir þar á hæfileika leikarans. Hér er dæmi um
slíkt. Kvíðbogi Kvalar vaknar á Lækjartorgi í upphafi 2. þáttar,
Alfreð Andrésson lék:
(Kvíffbogi sefur á bekk á torginu með jakkann samanvafinn undir höfð-
inu og regnhlíf spennta yfir höfðinu þegar tjaldið fer frá. Innan stundar
gefur músikkin bylmingshögg á trommuna, og Kvíðbogi hrekkur upp, sest
upp, geispar og teygir sig lítið eitt. Stendur upp og gerir hnébeygju, fer í
jakkann, tekur tannbursta úr öðrum brjóstvasa á vestinu og burstar tenn-
urnar, greiðu úr hinum brjóstvasanum og greiðir sér, vætir vasaklút í munn-
vatni og þurrkar framan úr sér, lagar slifsið, o. s. fr., stynur og situr mjög
hnugginn, einstæðingsskapurinn uppmálaður á bekknum. Rúsina kemur inn
frá hægri, vaggar þvert yfir leiksviðið, án þess að sjá Kvíðboga, göngulagið
fullt af sexappeal. Kvíðbogi: hjá honum vaknar vonarglæta, þegar hann sér
plussið. Stendur upp til hálfs:) Hello baby. (Rúsina: er rúmlega hálfnuð,
svarar ósjálfrátt án þess að líta við:) Hello gay. (Snýr sér svo við og sér, að
þetta er ekki annað en Kvíðbogi. Eins og hún sé að ávarpa marhnút, sem
hefur hlaupið á laxaflugu:) Ojj, íslendingsræfill. (Stímar út með fullum
oomp og minnsta kosti sextíu appeal.)24
Að því kemur að Kvíðbogi þarf að dulbúast fyrir þeim sem
hafa skýrsluna góðu í höndum. Á einu af hótelum bæjarins nær
eltingaleikurinn hámarki:
Kviðbogi: (Inn af no. 14 í kvenfötum. Það er dautt í vindlinum, hann fer í
buxnavasann sinn undir pilsin, nær í eldspýtu, kveikir í og púar stóran.)
Banga Banga: (Inn, ætlar á no. 13, sér Kvíðboga, verður fyr og flamme,)
Fagra þjónustumær, þér standið þarna svona einar og yfirgefnar.
Kviðbogi: (Með kvenrödd.) Það er bara rétt í augnablikinu, annars er ég
eins eftirspurð og þema Hitlers.
Banga Banga: (Kemur nær.) Með leyfi, mætti ég kannski hafa ánægjuna að
tala við yður rétt á meðan?
Kvlðbogi: (Bítur í lufsu sem hangir á kjólnum, hlær kóket.) Kannski takk.
(Er í vandræðum með vindilinn, stingur honum loks uppí Banga.) Það má
víst ekki bjóða yður vindil? Híhíhí.
Banga Banga: (Tekur óvart stóran reyk, hóstar, og tekur vindilinn út úr sér,