Skagfirðingabók - 01.01.1992, Síða 20
SKAGFIRÐINGABÓK
6. Að til ávaxtarins af þessum höfuðstól sé aldrei gripið
nema í sérlegustu og bágustu neyðartilfellum, heldur
sé honum annars safnað saman, til þess að hjálpin geti
orðið þess drjúgari á neyðartíma hinna þurfandi.
Þessir áðurgreindu 200 rd. standa nú á leigu hjá bóndan-
um, Mr. Stefáni Magnússyni á Víðimýri, og afhendast
þeir nú hér með fátækrastjórninni í Lýtingsstaðahreppi til
ráðstöfunar og allra umráða samkvæmt áðursögðu, frá
þessum degi, og rentuheimtingar frá 5. þessa mánaðar,
þ.e. 5. December 1850, og hefir fátækrastjórnin hér eftir
einungis að halda sér til nefnds bónda, Mr. Stefáns Magn-
ússonar, en ekki til mín um ansvar og óhultleik þessara
peninga, eins og hún líka ber umhyggju fyrir, að þessi mín
ráðstöfun verði kunngjörð á þeim stöðum og á þann hátt,
sem nauðsynlegt er til að koma í veg fyrir, að hún með
tímanum síðar falli í gleymsku, til skaða fyrir þá, er góðs
eiga af henni að njóta.
Þessu mínu gjafabréfi og ráðstöfunarskjali til styrking-
ar er mitt undirskrifað nafn og hjásett signet.1
Leifsstöðum þann 18. December 1850
Jóhannes Jónsson
Vitundarvottar:
H(inrik) Hinriksson Andrés Jónsson
(LS) (LS)
Um miðja 19. öld voru 200 ríkisdalir allmikið fé. Farið var
eftir því, sem Jóhannes lagði til. Jörðin Gilkot var keypt fyrir
gjafaféð og stóð svo fram á þessa öld. Þessi gjöf heitir Gjafasjóð-
ur Jóhannesar Jónssonar, en stundum var hann kallaður Gil-
1 „Lesið fyrir manntalsþingrétti á Lýtingsstöðum þann 7. júní 1851. L(árus)
Thorarensen." Hinrik eða Henrik Hinriksson, sem skrifar undir sem vottur,
var prestur á Bergsstöðum í Svartárdal.
18