Skagfirðingabók - 01.01.1992, Page 40
SKAGFIRÐINGABOK
sem var á heimilinu hvíslaði að henni, að annað stæði til. Mar-
grét Kristjánsdóttir fór með hana yfir að Sveinsstöðum. Sigur-
laug fylgdi henni fast eftir þegar þangað var komið, hélt í pils
hennar og sleppti því taki ekki. Síðan var farið með hana fram í
stofu. Jóhannes, sonur þeirra Sveinsstaðahjóna, fór þá að sýna
henni fugla úr ýsubeinum. Þá varð henni það á að sleppa pils-
faldi Margrétar, en þegar hún leit upp var Margrét horfin og
búið að loka bænum. Hún hljóp þá að bæjarhurðinni og hljóð-
aði mikið. Guðlaug talaði þá til hennar dálítið snöggt og sagði
henni, að börn mættu ekki láta illa. Sigurlaug var því ekki vön,
að svona væri talað til hennar, sneri sér við undrandi og þagnaði
í bili. En söknuðurinn var sár og langvinnur. Hana langaði til að
komasc aftur yfir að Sölvanesi, en áin var á milli og hún þorði
aldrei að fara langt frá bænum. Hún horfði stundum á fuglana
og óskaði að hún hefði vængi. Hún var einþykk og tók sér nærri
allt sem á móti gekk. Til dæmis um það er eftirfarandi saga. Ekki
mundi hún hana sjálf, en Guðlaug sagði henni síðar.
Sigurlaug vandist á að drekka kaffi í Sölvanesi og þótti það
gott. Eftir að hún kom að Sveinsstöðum fór hún að biðja um
kaffi, en þar var sjaldan farið með kaffi á þeim árum. Guðlaug
sagði henni þá, að lítil börn ættu ekki að drekka kaffi. Ekki
drykki Jóhannes kaffi. Þá varð Sigurlaug önug og sagði: „Þá
skal eg aldrei drekka kaffi hjá þér,“ og hún stóð við það og
drakk aldrei kaffi fyrr en hún fór að eiga það sjálf.
Guðrún í Sölvanesi lét Sigurlaugu fara vegna þess að hún var
heilsubiluð, og andaðist ekki löngu síðar. Það varð því Sigur-
laugu til góðs að hún fór að Sveinsstöðum.
Hey voru oftast til á Sveinsstöðum og oft látin hey í burtu. Þó
varð heylaust 1885 og annað vor til. Hey var til mislingavorið
1882. Vorið 1887 gerði fjögurra sólarhringa stórhríð eins og
áður getur. Góð tíð var áður og flóð komið í ána. A kross-
messudag kom Páll Reykjalín í vistina og reiddi Jóhannes hann
utan frá Lestavaði. Um nóttina skall hríðin á. Sauðir frá Sveins-
stöðum voru komnir víða, og fenntu fram hjá Anastöðum og
38