Skagfirðingabók - 01.01.1992, Side 53
VIÐ HLJÓMA STAFNSRÉTTAR
því fé, sem kom af Eyvindarstaðaheiði, rekið til Mælifellsréttar.
Eg hafði heyrt piltana í Eyhildarholti, sem sumir hverjir höfðu
farið mörg haust í Stafnsrétt, tala um réttardaginn í þeim tón, að
mér skildist, að þeir teldu hann með helztu hátíðisdögum
ársins. Raunar voru réttardagarnir tveir, því stóðið var réttað á
miðvikudag, en sauðféð á fimmtudag. Kom þetta alveg heim við
aðrar mestu hátíðir ársins, því að þar fara saman tveir helgir
dagar, þótt af öðrum ástæðum og ólíkum sé.
Eg var fljótur að tygja mig og fá mér matarbita. Hestarnir
höfðu verið látnir inn kvöldið áður og voru því til taks. Við
pabbi stigum nú á bak og riðum sem leið liggur suður túnið, yfir
Suðurkvíslina, sem var ekki nema neðan á síður, fram Borgar-
eyjuna austanverða, yfir Sandana úr Grundarnestánni, fram
Vallabakkana og upp á veginn hjá nýju Grundarstokksbrúnni,
eftir honum fram hjá Völlum, svo fram Vallhólminn, yfir Svart-
ána hjá Skiphóli og síðan Neðribyggðarveginn til Mælifellsrétt-
ar. Þetta var alllöng leið en krókalítil, og vegur ágætur víðast
hvar og við vel ríðandi.
Smám saman birti af degi, en ekki létti rigningunni að heldur.
Skárra var þó að hafa hana í bakið, en því olli norðangolan. Ekki
höfðum við vatnsheld hlífðarföt utan vaðstígvél, en vorum að
öðru leyti skjóllega búnir. Þó fór það svo, að áður en leiðin fram
í Mælifellsrétt var hálfnuð, vorum við orðnir holdvotir á bak-
inu, rassblautir og farið að renna ofan í vaðstígvélin.
Er við komum að réttinni, byrjuðum við á því að spretta af
hestunum, og fengum okkur svo matarbita sunnan undir réttar-
veggnum. Ekki var það nú beinlínis ánægjulegt borðhald í aus-
andi rigningunni. I réttinni var margt um manninn og mikill
fjárfjöldi, enda saman komið fé úr þeim víðlenda Lýtingsstaða-
hreppi, miklum hluta Seyluhrepps, og frá einum bæ utan úr
Hegranesi, Eyhildarholti. Er það eini bærinn í Hegranesinu,
sem á upprekstur á Eyvindarstaðaheiði, hvaða ástæður, sem í
öndverðu hafa legið til þess; hinir eiga upprekstur á Staðarfjöll.
Maður að heiman var fyrir í réttinni og byrjaður að draga. Mig
51