Skagfirðingabók - 01.01.1992, Síða 103
UM LEGSTEINA í HÓLADÓMKIRKJU
biskups; hans handverk er víða um ísland og mjög auð-
kennt.43
Kristján Eldjárn telur að steinar þeirra Þorláks og Gísla séu
vafalaust eftir Guðmund smið. Þeir eru báðir úr gráum, fremur
mjúkum steini, útlendum, ekki ólíkum efninu í skírnarfontin-
um. Þorlákur biskup dó 1656. A steini Gísla (eða réttara Gróu
konu hans, sem dó árið 1660) segir, að Gísli hafi látið úthöggva
hann árið 1661. Líklega er steinn Þorláks gerður litlu fyrr. Hins
vegar telur Kristján Eldjárn afar ósennilegt, að steinar Jóns
biskups Vigfússonar (d. 1690) og Einars biskups Þorsteinssonar
(d. 1696) séu verk Guðmundar. Þeir séu ekki það líkir hinum
steinunum að nauður reki til að eigna þá sama manni. Og þó að
Guðmundur smiður hafi enzt vel, geti hann naumast hafa unnið
hin vönduðustu steinhöggvaraverk á Hólum fram undir 1700,
þá kominn undir áttrætt.
Ef litið er á þessa fjóra legsteina, þá virðist nokkuð ljóst að
steinar Jóns og Einars séu eftir sama mann. Allt er svo nauða-
líkt: Myndir guðspjallamannanna, teinungaskrautið í kring,
letrið, afmörkun leturflatanna o.s.frv. Við fyrstu sýn virðist
steinn Gísla biskups (Gróu) vera náskyldur þeim. Má þar t.d.
benda á myndir guðspjallamannanna (einkum súlnahliðin), og
letrið. En við nánari athugun vakna efasemdir, því að skraut-
verkið á steinum þeirra Jóns og Einars er svo miklu stirðlegra.
Það gæti að vísu stafað af því, að Guðmundur hafi verið orðinn
gamall þegar hann hjó þá. En ef þessir steinar eru eftir annan
mann, þá hefur sá hinn sami líklega notað stein Gísla biskups
sem fyrirmynd.
Steinn Þorláks biskups hefur nokkra sérstöðu. Bæði letrið og
myndir guðspjallamannanna eru öðruvísi. En handverk Guð-
mundar smiðs er þó örugglega á honum. Því til stuðnings má
benda á fjóra kistuskildi úr koparblöndu, sem fundust undir
gólfi Hóladómkirkju vorið 1988. A skildi Gróu Þorleifsdóttur
er nákvæmlega eins blómakrans, og sjá má á miðjum steini Þor-
101