Skagfirðingabók - 01.01.1992, Page 104
SKAGFIRÐINGABÓK
láks Skúlasonar. Og laufakransinn umhverfis Kristsmyndina á
steini Gísla biskups á sér nákvæmar hliðstæður á tveimur
skjöldum öðrum.44 Líklega eru kistuskildirnir fjórir allir verk
Guðmundar snikkara, eða gerðir skv. fyrirsögn hans. Mun það
vera eina málmsmíðin sem til er frá hans hendi.
Einu atriði virðast menn aldrei hafa velt fyrir sér. Nú er vitað,
að efnið í steina þeirra Þorláks og Gísla er keypt erlendis frá. Því
er hugsanlegt, að búið hafi verið að vinna þá að hluta, þegar þeir
komu hingað til lands. Það gæti t.d. átt við um myndir guð-
spjallamannanna á steini Þorláks biskups. Einnig má benda á,
að engilsmyndin efst á þeim steini er mjög ólík öðrum slíkum,
sem til eru frá hendi Guðmundar smiðs. Því miður hef ég ekki
haft neitt samanburðarefni um danska legsteina frá 17. öld, sem
nota mætti til að skera úr um þetta.
Hvað sem því líður má fullyrða, að enn séu ótaldir tveir leg-
steinar á Hólum, sem Guðmundur snikkari hefur gert. Steinn
Halldóru Guðbrandsdóttur er örugglega eftir hann. Tímans
vegna er það mjög líklegt, því að Halldóra dó 1658. Skrautverk-
ið er allt í barokkstíl. Engillinn efst á steininum á sér margar
hliðstæður í verkum Guðmundar smiðs. Aldinklasarnir beggja
vegna minna um margt á klasana á steini Gísla biskups, og blað-
skrautið meðfram hliðunum er með líku fyrirkomulagi og á
steini Þorláks biskups. Sama má segja um letrið.
Legsteinn Kristínar Þorláksdóttur (frá 1682) er líklega einnig
eftir Guðmund smið.45 Skýrasta kennimarkið eru barokkengl-
arnir efst og neðst á steininum, auk þess sem letur og orðalag er
hliðstætt því, sem er á steini Halldóru Guðbrandsdóttur.
Að lokum skal bent á nauðsyn þess, að legsteinunum í Hóla-
dómkirkju verði hlíft við sliti eins og kostur er. Má þar sérstak-
lega nefna stein þeirra Gísla biskups og Gróu konu hans. Ef
hann er að öllu leyti verk Guðmundar Guðmundssonar í
Bjarnastaðahlíð, má helzt jafna honum við skírnarfontinn sem
listaverk.
102