Skagfirðingabók - 01.01.1992, Page 123
UM LEGSTEINA í HÓLADÓMKIRKJU
landfleygt. Drottningin, Júlíana María (1729-96) var um þessar
mundir afar valdamikil, þar sem stjúpsonur hennar, Kristján
VII, var geðveikur. I þjóðsögum Jóns Arnasonar segir:
Drottningin var þýzk, en biskup hefur verið linur í þýzk-
unni sem sagan sýnir. Drottningin vék sér mildilega að
biskupi og spurði hann að högum sínum, konu og öðru
slíku, og varð biskupi fátt til svara. Loksins spurði drottn-
ing hann: „En hvað mörg börn (kinder) eigið þér?“
„Fimmtigi kindur, yðar hátign,“ svaraði hann. „Fimmtigi
kinder; en hvað gerið þér, veslingur, við allan þennan
kinda(barna)grúa?“ svaraði drottning. „Já, og það er ekki
neitt, ég er kindafár, en sumir eiga tvö og þrjú hundruð
kindur. En á hverju hausti skerum við hér um bil helming-
inn af kindum okkar og étum þær á veturnar." „Guð
varðveiti mig!“ sagði drottning. Þá fóru að renna tvær
grímur á biskup, að hann mundi hafa svarað drottningu út
í hött, og kom þá upp að biskup hafði í huganum sauð-
kindina, en drottningin spurði um blessaðar barnkindur
biskups.70
Þau Jón og Margrét eignuðust tíu börn, og komust sex til
fullorðinsára. Gísli sonurþeirra keypti Hóla 1802 ogvarprest-
ur þar á árunum 1817-25. Hann hneigðist til fræðistarfa, hefur
e.t.v. sótt það í móðurættina.
18. Steinn Árna biskups Þórarinssonar
I kirkjugarðinum voru a.m.k. tveir legsteinar frá 18. öld, yfir
biskupunum Árna Þórarinssyni og Sigurði Stefánssyni. Þeir
hafa nú báðir verið fluttir inn í turninn og festir þar á vestur-
vegginn neðst til að hlífa þeim við frekari veðrun. Legstaðirnir
í garðinum verða merktir með plötum.
121