Skagfirðingabók - 01.01.1992, Page 142
VÖÐ Á HÉRAÐSVÖTNUM
eftir STEFÁN JÓNSSON, Höskuldsstödum
Á árunum 1984-87 kom út á vegum Sögufélags Skagfirðinga Ritsafn
Stefáns Jónssonar á Höskuldsstöðum, í fjórum bindum. I þessu ritverki
komu flestir þeir þættir, sem hann lét eftir sig og kalla mátti, að hann hefði
gengið frá til fullnustu. Samt var smávegis eftir, sem gat þó ekki fyllt heila
bók, en á fullt erindi á prent. Þar var helzt þáttur í annálsformi, sem hann
hafði lengi safnað til, og kallaði „Drukknanir í Héraðsvötnum“. Annar
þáttur samstæður var um vöð á Héraðsvötnum og Jökulsá eystri og vest-
ari. Er nú ráðið að birta þetta efni í Skagfirðingabók og fer hér á eftir kafl-
inn um vöðin. Drukknanaþátturinn mun væntanlega birtast í næsta bindi.
Seinustu ár sín hafði Stefán m.a. notað til að ganga frá ýmsum drögum
að þáttum, sem hann hafði unnið að. Svo var um eftirfarandi samantekt.
I dagbók sína hefur Stefán skrifað 9. september 1979, rúmu ári áður en
hann dó: „Eg lauk við ritgerð um vöð á Héraðsvötnum . . Trúlega hef-
ur hann bætt um síðar, því að í handritinu HSk. 85 4to er dagsetningin 13.
marz 1980. Kaflanum um Jökulsárnar virðist hann hafa lokið fyrr, eða í
marz 1977.
Eftirfarandi þáttur er ekki til í eiginhandarriti Stefáns, nema lítill hluti
af uppkasti. Hér er prentað eftir HSk. 85 4to, sem er uppskrift Bjarna
Halldórssonar á Uppsölum, en hann hreinskrifaði talsvert fyrir Stefán á
seinustu árum hans. Neðanmálsgreinar og innskot innan hornklofa eru
frá útgefanda.
Hj.P.
Vöd framan Hegraness
Árið 1894 voru Héraðsvötn eystri brúuð. Var það trébrú. Sú
brú var endurbyggð úr steinsteypu 1918. Bru á Vesturós Hér-
aðsvatna var byggð 1925. Brúin á Grundarstokk á aðalþjóðleið-
inni var byggð 1927. Með því hófst bílaumferðin, sem nú er
140