Skagfirðingabók - 01.01.1992, Page 154
SKAGFIRÐINGABÓK
Vöð á Jökulsá vestari
Keraldahylsvað. Þetta vað er næstum því ofan undan nýbýl-
inu Byrgisskarði. Þótti aldrei vel gott vað, en var þó farið ef áin
var ekki í miklum vexti.
Jórgilsvað. Það er nokkru fyrir framan Goðdali og var talið
sæmilegt.
Dalkotsvað. Þetta vað er nálægt Dalkoti, er lengi var í ábúð,
en er nú beitarhús frá Goðdölum. Vaðið er nokkru framar en
Hofsá fellur í Jökulsá, var kallað þrautavað þar í dalnum og
afar sjaldan ófært nema í mestu vatnavöxtum.
Músarnes. Sóknalýsing Goðdala- og Abæjarsókna 1840
nefnir vað á Jökulsáí Músarnesi, utan og neðan við Bakkakot.11
Mun hafa verið fáfarið og líklega aflagt nú orðið.
Kláfar á Jökulsánum
Guðmundur Guðmundsson efnabóndi á Ábæ, hinn mesti at-
orkumaður, setti kláf á Jökulsá eystri hjá Skatastöðum. Gerði
hann þetta að öllu leyti á sinn kostnað. Óvíst er hvaða ár kláf-
drátturinn komst á, en líklega þó á árunum 1853-58. Örugg
heimild er fyrir því, að kláfurinn var kominn haustið 1858. Það
sem segir í Bólu-Hjálmarssögu Símonar Dalaskálds, að kláfur
væri á ánni árin 1824-29, er eintómur þvættingur, eins og of
margt í þeirri sögu. Kaðall var í fyrstu í kláfstrengjunum. Þeir
reyndust illa. Síðar voru fengnir gildir stálstrengir.
Kláfur á Jökulsá vestari var settur 1874. Segir svo í Annál 19.
aldar: „Gengu menn í félag í Vesturdal og kostuðu hann að
hálfu leyti, en helmingur af kostnaðinum var greiddur af vega-
11 Sýslu- og sóknalýsingar Hins ísl. bókmenntafélags II, Skagafjarðarsýsla,
Ak. 1954, bls. 84. Par eru fyrrnefndu vöðin kölluð Kerbaldavad, Jórgilsbrot
og Dalkotsbrot.
152