Skagfirðingabók - 01.01.1992, Page 175
MINNINGABROT ÚR STÍFLU
eftir PÁL SIGURÐSSON frá Lundi
Páll Sigurðsson frá Lundi í Stíflu, f. 1904, fæddist í Háakoti og ólst þar
upp, en fluttist með foreldrum sínum í Lund í sömu sveit vorið 1916. Þeir
voru Sigurður Kristjánsson og María Guðmundsdóttir. Sigurður varð
bráðkvaddur í fjárhúsum sínum að morgni hins 19. desember 1919, að-
eins 41 árs að aldri. Bjó María eftir það ein með börnum sínum í Lundi.
Páll hefur punktað hjá sér ýmis minningabrot frá æskustöðvum, þar
sem m.a. er lýst ýmsum löngu gengnum heiðursmönnum. Hér birtast
nokkrir þættir, og fyrst fer stuttur kafli um samskipti foreldra hans við
Jón Jónsson hreppstjóra á Hafsteinsstöðum í Skagafirði.
Hj.P.
I
„Eigðu þetta litli skratti“
Það VARbjartan og mildan haustdag árið 1912, að gest bar að
garði foreldra minna í Háakoti. Hann var fremur lítill vexti,
klæddur dökkum síðum frakka og bar á höfði húfu með glans-
skyggni. Komumaður reið rauðum hesti, stólpagrip að sjá, og
hljóp af baki svo snarlega á bæjarhlaðinu, að hann hrasaði, en
missti þó ekki fótanna. Mamma var ekki heima, en pabbi, sem
stóð fyrir dyrum úti, heilsaði komumanni kunnuglega, og var
sýnilegt, að þeir þekktust.
Við systkinin vorum úti á stjákli. Það var ekki vani að fara í
felur þó gestir kæmu, við vildum gjarnan fylgjast með erindi og
173