Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1966, Page 39
MÚLAÞING
37
aði í smátt með handafli. Öttuðust menn hamfarir hans nokkuð.
En hann var geðprýðismaður og átti lítt í útistöðum, meinhægur
og aðgerðarlítill á búi og sýndi enga krafta fyrir utan þessar lítt
skiljanlegu hamfarir. Steinn eða klettur stendur framanvert við
tún í Krossavík. Þann stein sögðu menn að Þorsteinn hefði tekið
upp, en hafi svo ver.ið, hafa orðið að koma til sams konar kraftar
og er menn láta borð dansa — miðilskraftur — því að þeim krafti
eru iítil takmörk sett. Steinninn er engra mennskra manna með-
færi og sízt þeim, sem ekki eru nema meðalmenn að vexti og hafa
takmarkað faðmfang. Þorsteinn dó 1849, átti hann 5 börn. Ekki er
til orðspor af Guðríði konu hans. Þórunn María giftist einnig 1825.
Hún átti Arna son Guttorms prests á Hofi. Hann var heilsulítill
strax frá upphafi hjúskapar þeirra. Hann veiktist í Kaupmanna-
höfn og var orð á því, að þeim Hofsbræðrum hefði reynzt Hafnar-
veran óholl, og var hinn Guttormur síðar prestur í Stöð í Stöðvar-
firði. Þau Þórunn María og Árni voru mest á Hofi, og tók Árni ekki
prestsvígslu, fyrr en hann sótti um Skeggjastað á Strönd 1838.
Fékk hann kallið, en fór ekki þangað, en vígðist aðstoðarprestur
föður síns, en dó í þeim svifurn 1839. Höfðu þau Þórunn átt börn,
er dóu strax. Sigríður giftist ung, frænda sínum Sigfúsi Árnasyni,
prests á Kirkju'bæ Þorsteinssonar, en móðir hans var Björg dóttir
Péturs sýslumanns, sem einnig var móðir Þórunnar móður hennar.
Hún giftist því hálfbróður móður sinnar. Var það Sigfúsi, sem nú
var prestur á Dvergasteini, kúgun, sem hann undi illa, og drukkn-
aði liann í Lagarfljóti 1821, og var Sigríður þá tvítug að aldri.
Aftur g.iftist hún Vigfúsi syni séra Stefáns Árnasonar, er var bróð-
ir séra Sigfúsar, og drukknaði hann einnig í Lagarfljóti. Var hún
barnlaus með báðum mönnunum. Þótti hún fara illa út úr lífinu
og varð mjög einstæð kona, er aldur færðist yfir hana. Þótti hún
og ekki mikil fyrir sér. Oddur, yngsta barnið, skyld.i stunda skóla-
nám og var tekinn heimiliskennari í Krossavík til að kenna honum,
Jón guðfræðingur, sonur séra Þórarins skáids í Vogum við Mý-
vatn Jónssonar. Hann kenndi Oddi skólalærdóm, en Geir biskup
gaf honum prófvottorð, en um embættisréttindi hirti hann ekki,
scm hann þurfti að afla sér fyrir utan stúdentsvottorðið utanskóla.
Jón Þórarinsson kvæntist svo Eisu Birtu, sem að vísu heitir bara