Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1966, Side 42
40
MÚLAÞING
veg, og Oddur fékk heiðursbændatitilinn hinn ríki. Þau voru barn-
laus, svo að ekki þyngdi þau ómegðin. Þótti Ólöf skörungskona,
en Oddur lítill fyrir sér og stæði jafnvel í skugga af henni. Var það
að vísu eðlilegt, eins og uppeldi hans var háttað, að móðir hans
réði öllu um hans líf og efni. Mat Oddur Ólöfu líka mikils og tók
ekki af henni ráðin, þótt fyrir kæm,i, að honum fyndist hún gefa
fullríflega. Höfðu Vopnfirðingar uppi frægðarsögur af Olöfu, en
sumar á kostnað Odds.
Átti eitt sinn svo til að bera, að þau voru í heyskap, og batt þá
Olöf, en Oddur hélt fyrir reipin. Ólöf lét upp á hestana, en Oddur
stóð undir. Kallaði þá Oddur til Olafar: „Olöf mín, ertu komin
á klakkinn?“ Slíkar sögur þarf ékki dýrt að kaupa, þegar vel heyj-
ast og hændur eru glaðir. En hvort sem Ólöf batt og Oddur stóð
undir, voru þau ætíð birg í búi og ekki sízt af heyjum, og sennilega
hafa þeir ekki kunnað þessa sögu, sem til þeirra leituðu um bjarg-
ræði, er þá sjálfa þraut, þótt þeir byndu sína bagga og létu sjálfir
upp. Aðaimanntal er tekið 1835 og síðan á 5 ára fresti iangan tíma.
Að sjálfsögðu eru þar taldir alLir ábúendur í Krossavík ásamt
heimilismönnum, og felast í þeim mikilsverðar og áreiðanlegar
upplýsingar. Hér yrði það of langt mál að gera grein á þessu, enda
liggja þessar heimildir fyrir á þjóðskjalasafni öllum til nota. Það
hafði jafnt og þétt fjölgað fólki í Vopnafirði frá því um 1790, að
þar voru um 220 menn. Nú er það árið 1860, að aðalmanntalið
sýnir, að í sveitinni eru 989 menn, og býr nálega allt í sveitinni,
f.ðeins um 50 menn, þar sem nú er kaupstaðurinn. Þessa sér stað
í Krossavík. Nú eru þar 44 menn á fjórum búum og 9 á Hellis-
fjörubökkum á tveimur húum. Fyrst eru auðvitað talin þau Oddur
og Olöf. Þá ekkjan Björg Ólafsdóttir f. á Skinnastað, Finnbogi
Sigmundsson, er fyrr gat, og er nú kvæntur Þórunni Oddnýju Gutt-
ormsdóttur silfursmiðs í Krossavík, en hún hafði átt Guttorm son
Guttorms prests á Hofi Þorsteinssonar, en skilið við hann, og var
nú gift Finnboga. Sýnir þetta, að fólkið hefur vitað um frændsem-
ina við Finnboga, er hann fær Þórunnar. Búa þau Björg og Finn-
fcogi með Oddi á hans eign í Krossavík, því að fjórði ábúandinn
ei Guðríður Sigurðardóttir ekkja Þorsteins sterka, og býr hún á
sjálfseign, partinum úr Krossavík, er svo var nefndur. Sum börn